Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki mikill aðdáandi þeirra sóttvarnaráðstafana sem hér eru í gildi. Brynjar hefur margoft lýst efasemdum sínum um þær samkomutakmarkanir sem gripið hefur verið til.
Brynjar lét til sín taka á Twitter í hádeginu þar sem hann beindi harðri gagnrýni að Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
„Það logar allt í heilbrigðiskerfinu. Spítalinn að niðurlotum kominn og fólk svipt frelsi hægri vinstri. Á meðan er heilbrigðidráðherrann, af öllum, að þvælast vikulega upp í Borgarnes að telja atkvæði. Hvað er eiginlega í gangi?“
215 kórónuveirusmit greindust í gær og er um að ræða enn einn metdaginn í fjölda smita. Á sama tíma hefur starfsfólk Landspítalans kvartað sáran undan álagi og hefur Tómas Guðbjartsson hjartalæknir varað við því að aðeins tímaspursmál sé hvenær sjúklingur deyr vegna stöðunnar þar.
Þrátt fyrir þessa stöðu segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ekki tímabært að ræða harðari sóttvarnaraðgerðir en gripið hefur verið til. Bíða þurfi og sjá hvernig málin þróast en harðari samkomutakmarkanir tóku gildi aðfaranótt laugardags eins og kunnugt er.
Þórólfur ræðir þetta og fleira í nýju viðtali á vef Fréttablaðsins.
Það logar allt í heilbrigðiskerfinu. Spítalinn að niðurlotum kominn og fólk svipt frelsi hægri vinstri. Á meðan er heilbrigðidráðherrann, af öllum, að þvælast vikulega upp í Borgarnes að telja atkvæði. Hvað er eiginlega í gangi?
— Brynjar Níelsson (@BrynjarNielsson) November 16, 2021