Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, segir að þeim fjölgi hratt sem sjá skrattann í hverju horni og líta á alla aðra en sjálfan sig sem rasista og spillta niður í tær.
„Þetta fólk á það sameiginlegt að vera stíflað úr frekju, reitt og kímnigáfan í slöku meðallagi og jafnvel ekki mælanleg. Það yfirtekur samfélagsmiðlana og les helst ekki aðra miðla en Stundina, RUV og Kjarnann, en þar á bæ hafa menn tekið að sér að enduróma alla vitleysuna sem vellur upp úr þessu fólki. Mikið væri hollt fyrir þessa miðla að hafa svona eins og eina Kolbrúnu Bergþórsdóttur innanborðs eða einhvern annan sem er sæmilega lesinn og ber eitthvað skynbragð á manninn og samfélagið,“ segir Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hann segir að vinsælt sé að beina reiðinni að dómsmálaráðherra og stofnunum sem undir hann heyra.
„Ráðherrann er auðvitað rasisti fyrir að koma í veg fyrir að hver sem er geti komið til landsins og verið á framfæri skattgreiðenda svo lengi sem þeir vilja. Lögreglan er rammrasísk fyrir að kanna ábendingar við leit að eftirlýstum brotamanni, sem vill svo til að er dökkur á hörund. Lögreglan er að sinna störfum, sem verður ekki hjá komist, sem vissulega geta verið óþægileg fyrir viðkomandi.“
Brynjar virðist hafa fengið sig fullsaddan af þessu og segir að bæði fjölmiðlar og samfélagsmiðlar séu á yfirsnúningi yfir því að dómsmálaráðherra og aðstoðarmaður hans hafi flogið með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Reynt að tortryggja það og látið líta út að ráðherrann væri að nýta þyrluna í einkaerindum. Ráðherrann þáði boð um að kynna sér starfsemi Landhelgisgæslunnar og þyrlustarfseminnar sérstaklega þar sem fyrirhugaðar eru breytingar á flotanum og starfsemi deildarinnar. Aðstoðarmaðurinn reyndi allt sem hann gat til að koma sér undan þessari kynningu enda flughræddur maður. Langaði hann helst að klippa á reipið þegar ráðherrann seig úr þyrlunni niður í Höskuldsey á Breiðafirði,“ segir Brynjar sem endar skrif sín með þessum orðum:
„Það lítur út fyrir að íslenskir fjölmiðlar séu að sogast hratt niður í ruslflokk og styrkir frá skattgreiðendum bæta greinilega ekki stöðuna. Upphlaup út af engu kann að vera söluvara en fjölmiðlar á ríkisstyrkjum geta ekki hagað sér svona.“