Brynjar fær á baukinn eftir um­deildan pistil: Ekki mann­réttindi að mega ganga um og smita aðra

Ó­hætt er að segja að Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, hafi vakið at­hygli með pistli sem birtist á vef Vísisí gær­. Í pistlinum gagn­rýndi Brynjar sótt­varna­að­gerðir yfir­valda og sagðist vera hættur með­virkni með að­gerðum yfir­valda.

Í pistli sínum, sem ber yfir­skriftina Al­ræði, segir Brynjar að það hvarfli ekki að honum að gera lítið úr veirunni og ljóst að sótt­varna­yfir­völdum og stjórn­völdum hafi verið vandi á höndum og ekki aug­ljóst hvernig bregðast átti við.

„Eftir því sem fram líður er ég sann­færðari en áður að við og flest önnur ríki höfum ekki brugðist rétt við í bar­áttunni við veiruna. Þessi veira er ekki slíkt neyðar­á­stand sem rétt­læti að setja blóð­tappa í þjóðar­líkamann með svona al­mennum og í­þyngjandi tak­mörkunum. Sá blóð­tappi mun hafa miklu meiri á­hrif á á líf okkar og heilsu til lengri tíma,“ segir hann meðal annars og bætir við að hann vilji búa í frjálsu sam­fé­lagi.

„Til að tak­marka frelsið svona mikið þarf meira neyðar­á­stand en þessa veira veldur og það sem er enn mikil­vægara þá mega tak­markanir og þvinganir ekki hafa verri á­hrif á líf okkar og heilsu til lengri tíma en veiran sjálf. Mér finnst þetta sjónar­mið rök­rétt og eðli­legt og þurfi ekki að kalla á út­skúfun eða aðra opin­bera smánun,“ segir hann.

Eins og fyrr segir hefur pistilinn vakið tals­verða at­hygli og sitt sýnist hverjum.

Ragnar Freyr Ingvars­son, læknir og fyrr­verandi yfir­læknir CO­VID-göngu­deildarinnar, spyr á Face­book hvort Brynjar hafi ekki orðið á­gengt í að læra að telja og reikna.

„Hvað vill hann sjálfur? Er hann með ein­hverjar hug­myndir? Ein­hverja að­ferða­fræði? Ein­hverja nálgun? Hvað má frelsið kosta margar inn­lagnir á sjúkra­hús, á gjör­gæslu. Hversu mörg manns­líf? Hann verður alla­vega að reyna að reikna, reyna að rifja upp mennta­skóla­stærð­fræðina úr MR - og gera eitt­hvað meira en bara æpa og garga á yfir­völd. Nema að hér sannast hið forn­kveðna - að ekki sé unnt að kenna gömlum hundi að sitja!“

Hall­dór Auðar Svans­son, fyrr­verandi borgar­full­trúi Pírata, segir að pistill Brynjars sé van­trausts­yfir­lýsing í garð ríkis­stjórnarinnar. „Maður sem svona skrifar getur eðli málsins sam­kvæmt ekki stutt sitjandi ríkis­stjórn sem hann telur fara fram með al­ræðis­til­burðum.“

Guð­mundur Andri Thors­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar, deilir ekki pistli Brynjars og nefnir hann ekki sér­stak­lega. Hann segir þó í færslu sinni í morgun að það séu ekki mann­réttindi að mega ganga um og smita aðra.

„Það er ekki mann­réttinda­brot að vera í sótt­kví. Það jafn­gildir ekki al­ræði að komast ekki í sund eða ræktina. Þetta er ó­þægi­legt og hvim­leitt og skelfi­legt fyrir rekstrar­aðila, en við hin ættum að reyna að hemja okkur í píslar­vættinu. Já eða - svo notað sé vin­sælt orð - sýndar­menns­kunni.“