Atli Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Transparency International segir af og frá að sendinefnd frá Namibíu hafi hitt Brynjar Níelsson, aðstoðarmann dómsmálaráðherra í einkaerindum í júní líkt og Brynjar hefur sagt.
Atli ræðir málið við vef Fréttablaðsins nú síðdegis. „Að sjálfsögðu hitti sendinefndin frá Namibíu ekki Brynjar í einkaerindum, það segir sig algjörlega sjálft. Brynjar er bara „nobody“ utan Íslands, það veit enginn hver þessi maður er,“ segir Atli í samtali við vef blaðsins.
Sjá einnig: „Bara bankað upp á sísvona og enginn vissi af þeim“
Brynjar fundaði með aðstoðarráðherra Namibíu, ríkissaksóknara landsins og aðstoðarframkvæmdastjóra namibísku spillingarnefndarinnar vegna Samherjamálsins.
Brynjar gefur ekki upp frekari upplýsingar um fundinn og hefur borið fyrir sig að fundurinn hafi verið í einkaerindagjörðum, ekki opinberum og sé því fyrir utan gildissvið upplýsingalaga.
„Hverskonar aðstoðarmaður ráðherra leyfir sér að tala svona um fund með sendinefnd frá Namibíu? Namibía er land þangað sem íslenskt fyrirtæki fór og rændi og ruplaði, við vitum það á gögnum. Það er málaferli í gangi og það er risastór rannsókn,“ segir Atli, og vísar þar til Samherjamálsins.
Hann segir málið sýna hve lágur siðferðisþröskuldur íslenskra stjórnmála er.