Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vandar Viðreisn ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifaði og birtist á vef Vísis í morgun.
„Viðreisn ætlar í kosningabaráttunni að leggja megin áherslu á nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi, þar sem aflaheimildir verði innkallaðar með fyrningarleið og seldar hæstbjóðanda. Að vísu vantar alla útfærslu í tillögunum en í grunninn eru þetta sennilega vitlausustu tillögur sem nokkur stjórnmálaflokkur hefur lagt fram á lýðveldistímanum og óframkvæmanlegar með góðu móti. Ábyrgir stjórnmálaflokkar geta ekki leyft sér svona gáleysistal og sýndarmennsku þegar mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar er undir,“ segir Brynjar meðal annars í grein sinni.
Hann segir að hvergi í heiminum skili sjávarútvegur jafn miklu til þjóðarinnar og hér á landi. Kerfið sem hér er við lýði hafi leitt af sér mikla nýsköpun tengda sjávarútvegi og mikilvægt sé að standa vörð um samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs enda sé hann í samkeppni við lönd þar sem atvinnugreinin er með beinum og óbeinum hætti ríkisstyrkt.
„Í þessu felast hagsmunir þjóðarinnar en ekki á innköllun aflaheimilda og sölu á þeim til hæstbjóðanda eða hærri sköttum,“ segir Brynjar sem er þeirrar skoðunar að þessi leið myndi rústa íslenskum sjávarútvegi.
„Það hefur ekki reynst vel hjá öðrum þjóðum sem hafa farið þessa leið. Þetta er Viðreisnarfólki vel kunnugt og ólíklegt er að flokkurinn færi þessa leið bæri hann ábyrgð á málaflokknum. Völdum fylgir nefnilega ábyrgð. En í kosningabaráttu geta stjórnmálaflokkar leyft sér ábyrgðarlaust hjal og innihaldslaus loforð í sinni sölu- og sýndarmennsku. Viðreisn er ekki ein í þessum leik og mér sýnist Samfylkingin ætli að toppa alla aðra. Svo verður maður bara að vona að kjósendur sjái í gegnum þessa óreiðu alla,“ segir hann meðal annars.
Brynjar fer svo í saumana á greinargerð Daða Más Kristóferssonar, prófessors í hagfræði og núverandi varaformanns Viðreisnar, um áhrif fyrningarleiðar á afkomu og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Sagði Daði að hún fæli í sér neikvæð áhrif á efnahag og rekstur útgerðarfyrirtækja.
„Við megum ekki láta skammtíma hagsmuni eyðileggja mikilvæga atvinnugrein með tilheyrandi tjóni fyrir okkur öll . Nú veit ég ekki hvort Daði Már hafi breytt um skoðun, eða hann hafi álpast óvart í rangan flokk,“ segir Brynjar og bætir við að honum hafi verið nokkuð hlýtt til Viðreisnar í upphafi og talið að flokkurinn gæti aukið fylgi við frjálslynd borgarleg öfl í landinu.
„Í þessari kosningabaráttu eru stóru málin þar á bæ innköllun aflaheimilda og sala til hæstbjóðanda, innganga í ESB, tengja krónuna við evru og ný stjórnarskrá. Þessum málum var þó öllum fórnað fyrir ráðherrastólana á sínum tíma með „bjartri framtíð“ Ég vissi ekki að Viðreisn hafi ráðið Jóhönnu Sigurðardóttur sem kosningastjóra. Held að það sé ekki gagnlegt fyrir framboðið, ekki frekar en hafa stjörnulögmanninn sem helstu málpípuna á samfélagsmiðlunum,“ segir hann og vísar þar í Svein Andra Sveinsson hæstaréttarlögmann.