Brynjar efast um að grænmetisætur séu góðar í rúminu: „Grindhoraðar og fölleitar“

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður, segist efast um að grænmetisætur séu betri en kjötætur í rúminu. Hann segir að rannsóknir sem sýni fram á slíkt séu líklega falsfréttir.

Frá þessu greinir Brynjar í færslu á Facebook sem fjallar um Boris Johnson, fráfarandi forsætisráðherra Breta, sem tilkynnti um afsögn sína á dögunum.

Brynjar segir að Boris megi eiga það að. hann sé gífurlega skemmtilegur, en honum finnst það sama ekki eiga við um vinstri menn.

„Nú er Boris, besti vinur Gulla, að láta af embætti. Hann fór jafn mikið í taugarnar á vinstri mönnum á Íslandi og frú Thatcher og Ronald Reagan á sínum tíma. Þau nutu öll almennrar hylli og settu mark sitt á samtíðina og höfðu dug og þor. En í huga vinstri manna voru þau algert skaðræði og ýmist trúðar eða heimsk nema hvorttveggja væri. Nú er Boris trúður að því að hann er ekki drepleiðinlegur rétthugsandi vinstri maður.“

Brynjar segir að vinstri menn sem stundi félagsvísindi hafi lengi reynt að sanna að þeir sem halli til vinstri séu skemmtilegri en þeir sem séu til vinstri. Hann segir að það sé vel mögulegt, þó hann efist það. Þó segist hann efast það að grænmetisætur séu jafn góðar, eða betri en kjötætur í rúminu.

„Vinstri menn í félagsvísindadeildum háskóla um allan heim hafa lengi reynt að sanna að vinstri menn séu skemmtilegri en aðrir. Nú má það vel vera, þótt ég hafi efasemdir, en hvað sem því líður hafa þeir allavega ekki verið kosnir til forystu í öllum þessum vinstri flokkum sem víða er að finna. Þettu eru sömu vísindamennirnir sem sögðu að grænmetisæturnar væru betri í rúminu en kjötæturnar. Það sjá allir að grindhoraðar og fölleitar grænmetisætur geta ekki verið betri í rúminu en bústnar og sællegar kjötætur. Þetta eru sennilega falsfréttir og upplýsingaóreiða.“