Brynjar búinn að gera upp hug sinn – Sendir frá sér yfirlýsingu

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur gert upp hug sinn varðandi það hvort hann þiggi sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar.

Eins og kunnugt er hafnaði Brynjar í 5. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík en hann sóttist eftir 2. sætinu. Eftir að niðurstaðan varð ljós tilkynnti Brynjar að hann væri hættur í pólitík og ætlaði ekki að þiggja 5. sætið. Mjög hefur hins vegar verið þrýst á Brynjar um að gefa áfram kost á sér en hingað til hefur hann verið þögull sem gröfin.

Fréttablaðið náði tali af Brynjari í morgun og í samtali við blaðamann staðfesti hann að hann væri búinn að gera upp hug sinn. Brynjar, sem var í baði þegar blaðamaður náði tali af honum, sagði að von væri á yfirlýsingu frá honum í hádeginu.

Hér má lesa viðtal Fréttablaðsins við Brynjar.