Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er afar ósáttur við umfjöllum RÚV í gær um málefni Samherja.
Í gær var greint frá því að sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja hefðu réttarstöðu sakbornings í rannsókn Héraðssaksóknara á ætluðum mútum, peningaþvætti og fleiri brotum sem tengjast Namibíustarfsemi þess. Umræddir starfsmenn voru nafn- og myndbirtir í umfjölluninni.
Brynjar hefur áður tjáð sig um málefni Samherja og RÚV en í lok ágústmánaðar furðaði hann sig á viðbrögðum fjölmiðlamanna við myndböndum Samherja. Hann segir á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu:
„Nú held ég að Ríkisútvarpið, sem margir trúa að sé útvarp allra landsmanna, hafi slegið öll met í lágkúru þegar í aðalfréttatíma voru upplýsingar um hverjir hafi réttarstöðu sakbornings í rannsókn með myndbirtingu sem snýr að starfsemi Samherja í Namibíu. Enginn annar fjölmiðill hefur lagst svona lágt.“
Brynjar, sem er hæstaréttarlögmaður, bendir í færslu sinni á að við rannsókn mála fái þeir sem veitt geta upplýsingar oftar en ekki réttarstöðu sakbornings sem veitir þeim mestu réttindin við rannsóknina.
„Það er mjög þungbært fyrir venjulegt fólk og starfsmenn fyrirtækis sem er til rannsóknar og upplýsingar og myndbirting af þessu tagi er til þess fallið að valda viðkomandi skaða. Þetta lítur út eins og hefnd sett í búning fréttar enda fréttin birt með þessum hætti deginum eftir kæru Samherja til siðanefndar RUV,“ segir Brynjar sem furðar sig á málinu.
„Stundum er sagt að ríkisútvarpið sé almannaútvarp í eigu allra landsmanna. Ég vil ekki eiga hlut í félagi sem stundar svona vinnubrögð og afsala honum hér með og krefst ekki endurgjalds. Vildi gjarnan að þeir sem fara með hlut almennings í þessu félagi reyni að koma því til leiðar að því sé stjórnað svo einstakir starfsmenn geti ekki notað miðilinn eins og þeim sýnist í átökum við einstaklinga og fyrirtæki úti í bæ.“
Nú held ég að Ríkisútvarpið, sem margir trúa að sé útvarp allra landsmanna, hafi slegið öll met í lágkúru þegar í...
Posted by Brynjar Níelsson on Föstudagur, 4. september 2020