Brynjar: Bjarni hefur gefist upp – „Vonar bara að kjósendur gleymi“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi gefist upp á að hafa hemil á honum. Þetta segir Brynjar á eigin Facebook-síðu þar sem hann svarar athugasemd Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns.

Brynjar skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í dag þar sem hann gerði upp undanfarna viku. Brynjar – sem er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum – var nokkuð áberandi í fréttum vikunnar og náði hann meðal annars að styggja sjálfan Bubba Morthens og fjölmarga aðdáendur hans. Þá lýsti hann skoðun sinni á Samherjamálinu þar sem hann lýsti yfir stuðningi við fyrirtækið.

„Síðasta vika hefur kennt mér margt um umræðu á samfélagsmiðlum, og reyndar fjölmiðlum líka. Ég birti grein í byrjun vikunnar í tengslum við umræðu um Samherja og mikilvægi þess að allir væru jafnir fyrir lögum og mættu verja sig gegn ásökunum. Lauk ég greininni með því að benda Bubba vini mínum á, sem hafði kvartað yfir þögn þingmanna um Samherjamálin, að það þyrfti öflug útflutningsfyrirtæki til að standa undir heiðurslaunum manna til æviloka.“

Brynjar segir að þessi „einföldu sannindi“, sem öllum eru ljós, hafi samt valdið verulegri geðshræringu í samfélaginu. „Stórleikaranum Jóhanni Sigurðarsyni, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, varð verulega brugðið við skrif mín og gott ef ekki fauk í hann líka. Skrifaði hann langa ritgerð um mikilvægi Bubba og frægðarverk hans og ef ég skildi hann rétt voru þau slík að ekki væri hægt að meta það til fjár.“

Brynjar heldur svo áfram:

„Nú skattakóngurinn til margra áratuga, Hallgrímur Helgason, benti á að laun mín væru miklu hærri en Bubba þótt ég gerði miklu minna gagn. Það verður ekki af Hallgrími tekið að hann er mjög fyndinn og sniðugur. Þá reyndu stjórnmálamenn, með von um frama, að stökkva á vinsældarvagninn, og skrifaði Bensi (Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar) vinur minn með svipuðum hætti. Nú átti að reyna stangarstökk til að komast hærra. Eina sem ég get sagt við Bensa að þeir sem hafa aðgang að opnu síðu Moggans og ætla sér frama í pólitík ættu að nýta það til að skrifa alvöru greinar um stjórnmál en nota samfélagsmiðlana fyrir stökkin á vinsældarvagninn.“

Brynjar segir að það eina sem kom fram að viti í umræðu síðustu viku á samfélagsmiðlum var þegar Bubbi sagði sjálfur að Brynjar væri torfbær í jakkafötum.

„En ég má víst þakka fyrir það að hann kallaði mig ekki pjakk eða prinsessu. Annars er það merkilegt að það skuli vera skopmyndateiknarar Fréttablaðsins sem helst hafa tilfinningu fyrir því samfélagi sem við lifum í.“

Færslur Brynars vekja jafnan athygli og spurði Sveinn Andri í athugasemd undir hvort formaðurinn, Bjarni Benediktsson, væri ekkert að reyna að hafa hemil á honum. Því svaraði Brynjar svona: „Nei, er búinn að gefast upp á því. Vonar bara að kjósendur gleymi.“