Brynjar bíður eftir að unga fólkið rísi upp

„Ég er alltaf að bíða eftir því að ungt fólk rísi al­menni­lega upp gegn allri þessari pólitísku rétt­hugsun sem tröll­ríður sam­fé­laginu og berjist fyrir raun­veru­legu frelsi í stað að sætta sig við að ríkis­valdið leiði okkur í gegnum lífið skref fyrir skref.“

Þetta segir Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, á Face­book-síðu sinni. Hann segir að pólitísk rétt­hugsun sé hættu­leg hverju sam­fé­lagi. Sagan hafi kennt okkur það.

„Rétt­hugsunin dregur jafnt og þétt allan þrótt úr ein­stak­lingnum og dregur úr sam­keppnis­hæfni sam­fé­lagsins. Ó­hjá­kvæmi­lega fylgir of­stæki sem er skað­legt fyrir lýð­ræðið og réttar­ríkið. Smátt og smátt hverfur öll kímni­gáfa og depurð og kvíði yfir­tekur allt eins og merkja má á þessari færslu,“ segir hann.

Margir hafa skrifað at­huga­semdir undir færslu Brynjars, þar á meðal góð­kunningi hans, Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata.

„Af því að pólitískt rang­læti er verra vanda­mál. Þú veist, eins og að hunsa niður­stöður þjóðar­at­kvæða­greiðslu. Kannski ef rang­lætið hættir þá lagast þetta bara allt? Líka við­brögðin við því sem vill oft til að er upp­nefnt pólitísk rétt­hugsun.“

Jakob Bjarnar Grétars­son, blaða­maður á Vísi, tekur undir það að pólitísk rétt­hugsun sé stór­skað­legt fyrir­bæri og bein­tengd með­virkni.

„Og eins og Brynjar segir, húmors­leysið verður al­gert. Það er til að mynda ekki til neitt sem heitir pc grín ein­fald­lega vegna þess að tví­ræðnin, marg­ræðnin, túlkunar­rýmið er horfið; háskinn og hið ó­vænta er farið. Þetta er fyrir­sjáan­legt og drep­leiðin­legt,“ segir hann.

Egill Helga­son fjöl­miðla­maður segir að líkur séu á að Brynjar þurfi að bíða lengi.

„Það sem þú kallar pólitíska rétt­hugsun er mjög sterk hjá yngra fólki - við sem eldri erum skiljum miklu verr alla núansa "woke" kúltúrsins. En kannski er kyn­slóð núna á leik­skólunum sem gerir upp­reisn - hver veit?“

Ég er alltaf að bíða eftir því að ungt fólk rísi almennilega upp gegn allri þessari pólitísku rétthugsun sem tröllríður...

Posted by Brynjar Níelsson on Fimmtudagur, 19. nóvember 2020