„Þær eru víða hýenurnar sem renna á blóðslóðina. Virðast þær einstaklega grimmar innan Samfylkingarinnar gagnvart eigin fólki,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Brynjar vísar þar í deilurnar innan Samfylkingarinnar eftir að Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður flokksins, var sakaður um kvenfyrirlitningu í útvarpsþættinum Sprengisandi á sunnudag. Sagði Ágúst Ólafur að sitjandi ríkisstjórn væri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar en ekki Katrínar Jakobsdóttur. Það væri að minnsta kosti ljóst hver stjórnaði. Ágúst Ólafur baðst síðar afsökunar á ummælum sínum.
Það vakti svo athygli þegar forseti ungra jafnaðarmanna og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Ragna Sigurðardóttir, gagnrýndi Ágúst Ólaf harðlega. „Svona eiga þingmenn ekki að tala. Gott og gilt að biðjast afsökunar en ummælin minna óneitanlega á þá kynferðislegu áreitni sem þingmaðurinn sýndi af sér og léleg viðbrögð hans í kjölfar opinberunar hennar,“ sagði Ragna.
Í færslu sinni segist Brynjar ekki vita betur en að margir aðrir innan Samfylkingarinnar hefðu haldið þeirri „dellu“ fram að Bjarni réði öllu í ríkisstjórninni.
„En nú bregður svo við að Ágúst Ólafur er sakaður um kvenfyrirlitningu og annan slíkan ósóma, eins fráleitt og það er. Það er eins og eigin flokksmenn hafi beðið á hliðarlínunni eftir tækifæri til að slátra þingmanninum. Í valdabaráttunni í Valhöll erum við eins og kórdrengir í samanburði við þessi ósköp.“