Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur gert upp hug sinn og ætlar að gefa kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi fyrir flokkinn.
Brynjar tilkynnti þetta rétt í þessu en hann hafði legið undir feldi undanfarna daga.
Eins og kunnugt er hafnaði hann í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en sóttist eftir 2. sætinu. Í kjölfarið tilkynnti hann að hann ætlaði að láta gott heita í stjórnmálum. Fast var sótt að Brynjari að halda áfram og virðist það hafa skilað árangri.
Brynjar gefur því kost á sér fyrir komandi kosningar og verður að líkindum í 3. sætinu í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu sem ætti að skila honum þingsæti miðað við fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Færsla Brynjars á Facebook:
„Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík taldi ég rétt að kveðja stjórnmálin. Niðurstaðan var vonbrigði fyrir mig enda talsvert frá markmiðum mínum. Þessi ákvörðun féll í grýttan jarðveg hjá mörgum flokksmönnum og var lagt nokkuð hart að mér að endurskoða þessa ákvörðun. Ég féllst á að íhuga það. Mér var bent á af sérfræðingum í eðli prófkjara og Kremlarlógíu flokksins að niðurstaða prófkjörsins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náðist að sannfæra mig um að ég hafi verið sigurvegari prófkjörsins, eiginlega stórsigur.
Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kófsveittur og illa lyktandi hef ég ákveðið að þiggja sæti á listanum, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sannfærður um að stefna flokksins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í komandi kosningabaráttu og er sannfærður um að sterkur og breiður Sjálfstæðisflokkur er mikilvægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.
Í Sjálfstæðisflokknum eru margar vistarverur og við erum ólík. En við eigum sameiginlegar hugsjónir sem birtast í grunnstefnu flokksins. Við þurfum hins vegar að berjast fyrir stefnunni og hugsjónunum. Þurfum kjark og þor í stað þess að berast með straumnum, sem á það til að fara í misgóðan farveg, öllum til tjóns.“