Brynjar á lista yfir þá sem Stefán vill síst hitta: „Mér finnst hann bara vera búllí“

Stefán Ingvar Vigfússon, uppistandari og pistlahöfundur, ætlar í dag að láta reyna á kenningu Brynjars Níelssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins og núverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra, um afdrif grínara í ójafnvægi.

Fjallað er um þettaí Fréttablaðinu í dag þar sem Stefán Ingvar vandar Brynjari ekki beint kveðjurnar.

Orðaskak þeirra Stefáns og Brynjars í sumar vakti talsverða athygli en Stefán hjólaði í Brynjar og fleiri ágæta menn, til dæmis Jordan Peterson, í bakþankapistli í Fréttablaðinu. Brynjar svaraði skrifum Stefáns og sagði meðal annars:

„Hann áttar sig ekki á því […] að það fer aldrei vel að vera með uppistand þegar menn eru í fullkomnu ójafnvægi. Þá fer allt fyrir ofan garð og neðan.“

Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að Stefán hafi frumsýnt sýninguna Fullkomið ójafnvægi á Act Alone á Suðureyri fyrr í þessum mánuði og ætlar hann að endurtaka leikinn í Tjarnarbíói í dag klukkan 17.30. Í umfjölluninni kemur fram að hann muni í leiðinni gera nokkrar tilraunir sem geta mögulega skilað honum gagnlegum niðurstöðum.

„Sýningin er tilraun til þess að komast að því hvort það sé rétt hjá honum,“ segir Stefán sem vill ekki meina að hann sé í fullkomnu ójafnvægi.

„Nei, nei. Ekki núna. Ég er alveg í þokkalegu jafnvægi og ef ég er í fullkomnu ójafnvægi þá hefur það bara gengið þokkalega fram að þessu. Ég var að semja þetta efni um það leyti sem Bakþankarnir birtust og frumsýndi eftir það,“ segir hann og bætir við að hann sé ekki beint gramur út í Brynjar eftir orðaskiptin þeirra í sumar.

„Nei, ég er ekkert gramur út í hann en ég fíla hann hins vegar ekki neitt,“ segir Stefán Ingvar og bætir við að Brynjar sé alveg á listanum yfir þá sem hann vilji síst hitta. Honum finnst hann ekkert fyndinn heldur.

„Nei, mér finnst hann bara vera búllí sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nýtt sér,“ segir hann í Fréttablaðinu.