Brynjar í auka­hlut­verki í sunnudagsmynd RÚV: „Þetta er eins og að horfa á Vikuna með Gísla Marteini í öðru veldi“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, telur Co­vid-heimildar­myndin Stormur sem RÚV sýnir á sunnudögum muni ekki eldast neitt sér­stak­lega vel.

„Mér hefur gengið af­­skap­­lega illa að horfa á heimildar­­myndina um ko­vid­tímann og þrí­­eykið enda verður hún seint kölluð skemmti­efni þótt ég og frú Ander­sen erum í auka­­hlut­­verkum. Hún líkist líka meira sjón­­varps­­leik­­riti en heimildar­­mynd. Ég er ekki viss um að þessi mynd eldist vel og heldur ekki enn ljóst hver er mesti fá­vitinn í sögunni,“ skrifar Brynjar.

„Þrátt fyrir það myndi ég frekar horfa á Þór­ólf spila á bassa og fussa yfir því hvað aðrir eru vit­lausir tuttugu kvöld í röð en að halda út að horfa á heila Óskars­verð­­launa­há­­tíð. Rauði dregillinn er hálfu verri en verð­­launa­há­­tíðin sjálf. Þetta er slík gervi­­ver­öld sjálf­hverfar elítu sem er illa haldin af rétt­hugsun að venju­­legu fólki verður bumbult. Þetta er eins og að horfa á Vikuna með Gísla Marteini í öðru veldi,“ bætir hann við.

„Ég finn til með sumu fólki að þurfa að vera á þessari há­­tíð, alveg eins og með sumum gestum Gísla Marteins. Þeir geta ekki sett hendur fyrir and­lit og tappa í eyrun eins og við sem erum heima,“ skrifar Brynjar