Brynja Þorgeirsdóttir, fréttamaður á RÚV, segir að viðbrögðin eftir fréttaskýringu Kveiks um fjölda barna í ofþyngd hér á landi hafi almennt verið mjög jákvæð.
Þetta kemur fram í viðtali við Brynju í Fréttablaðinu í dag, en þátturinn hlaut nokkuð hörð viðbrögð – einkum sá þáttur sem sneri að offitu barna á landsbyggðinni. Kom fram að mikill munur væri á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu hvað varðar fjölda barna í ofþyngd.
Í umfjöllun DV, áður en þátturinn var sýndur, kom meðal annars fram að gagnrýnin hefði komið fram fyrir sýningu þáttarins. Var umfjöllun Kveiks sögð innihalda fordóma gagnvart landsbyggðinni og börnum.
Í umfjöllun Fréttablaðsins í dag segir Brynja að holdafarsfordómar séu einu fordómarnir sem enn virðast samfélagslega viðurkenndir. Fordómarnir skýri að hluta hve umfjöllun um holdafar og heilsu er viðkvæm.
Um þau hörðu viðbrögð sem birtust í tengslum við samband landsbyggðar og offitu og efnahag heimila vísaði Brynja í orð barnalæknis í þættinum um tölfræðilega fylgni milli menntunar, tekna og offitu.
„Þessi mál hvetja heilbrigðisyfirvöld sveitarfélaganna til að skoða hvort eitthvað sé í samfélagsgerðinni sem þurfi að breyta og auka þá framboð á aðstoð,“ segir Brynja.
Í Fréttablaðinu er haft eftir Töru Margréti Vilhjálmsdóttur, félagsráðgjafa og formanni Samtaka um líkamsvirðingu, að hún hafi saknað þess að fjallað hafi verið um þyngdarhlutlausa nálgun í þættinum. Aðeins hafi verið fjallað um offitu út frá þyngdarmiðaðri nálgun. Betra væri að nálgast málið út frá heilsuvenjum og öðru en þyngd.
„Þetta var einhliða umfjöllun, sem var synd því að margra mati er þyngdarhlutlaus nálgun skaðaminni,“ segir hún en tekur þó einnig fram að margt gott hafi komið fram í þættinum.