Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis- og varnarmálafræðingur, er mjög ánægð með flugið sitt hjá Flugleiðum eða Iceland Air Connect til Ísafjarðar.
„Hrós dagsins (vikunnar jafnvel) á Ragnar Friðrik Ragnar flugstjóri hjá @Icelandair fyrir að sóla ekki bara einn, eða tvo, heldur a.m.k. 8 hringi á #TF-jól fyrir botni Ísafjarðardjúps í engu skyggni og ná samt að lauma vélinni inn fjörðinn fagra milli élja,“ skrifar Brynja á Twitter.
„Veit það er ekki í tísku að hrósa IcelandAir þessa vikuna en þessi flugmaður er jólasveinn þessarar hátíðar. Klukkutíma hringflug í svartaskyggni er alger jóli á sleðanum dæmi,“ bætir hún við.
Elliði Vatnsfjörð tekur undir með Brynju og segir: „Þetta eru sérstakar persónur, þetta innanlandsflugfólk. Skorið úr öðrum við en annað.“
Það má ekki gleyma því að hrósa fólki yfir hátíðarnar og þetta er svo sannarlega vel gert.
Veit það er ekki í tísku að hrósa IcelandAir þessa vikuna en þessi flugmaður er jólasveinn þessarar hátíðar. Klukkutíma hringflug í svartaskyggni er alger jóli á sleðanum dæmi.
— Brynja Huld Oskarsdottir (@BrynjaHuld) December 21, 2022
Enda kom þetta frá skurðhjúkkunni móður minni sem var greinilega með puttann á púlsinum um leið og dekkinn snertu malbikið. pic.twitter.com/IXeGZwR6Ck
— Brynja Huld Oskarsdottir (@BrynjaHuld) December 21, 2022