„Það er skoðun mín að hver eigi að ráða sínum næturstað. En einhverra hluta vegna erum við með mjög strangar reglur þegar kemur að því að ráða sínum næturstað inn í eilífðina,“ sagði Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um störf þingsins í morgun.
„Þar hefur ríkisvaldið ákveðið að við skulum láta jarðsetja okkur í kirkjugarði, jú, eða við getum sótt um að láta að brenna líkamsleifar okkar og þá skuli þær jarðsettar með tilteknum hætti. Það er sem sagt nánast ómögulegt að fá að renna saman við hafið eða fjöllin þótt það kunni að vera það sem við óskum helst,“ sagði hún.
Bryndís hefur nú lagt fram, í annað skipti, frumvarp þess efnis að liðka fyrir þessu í lögum. Sagðist hún óska þess að fá að mæla fyrir frumvarpinu svo fljótt sem verða má.
„Ég tel mikilvægt að við höfum frelsi þegar kemur að þessum málum eins og svo mörgum öðrum. Ég hef lítinn skilning á því að ríkisvaldið og stjórnsýslan þurfi að fara með þessi mál. Það hefur færst mjög í aukana að fólk óski eftir því að láta brenna sig í stað þess að jarðsetja og við sjáum ákveðna þróun í þeim efnum,“ sagði Bryndís sem sagðist átta sig á því að kirkjugarðarnir væru mikilvægt menningarlegt og samfélagslegt fyrirbrigði.
„Og mér finnst mikilvægt, sérstaklega á jólum og öðrum hátíðisdögum, að fara í kirkjugarðinn og minnast þeirra sem liðnir eru, minna á ástina. En mér finnst líka mikilvægt að fá að ráða því þegar þar að kemur hvar og hvernig mínir aðstandendur munu minnast mín,“ sagði Bryndís sem biðlaði til þingsins um að fá að mæla fyrir málinu fljótt.