Bryndís vekur mikil viðbrögð: „Jarðtengingu takk“ – Eitt stórt partý verði bjórinn seldur áfram?

Óhætt er að segja að Bryndís Jónsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá Heimili og skóla, hafi vakið hörð viðbrögð meðal knattspyrnuáhugamanna fyrir afstöðu hennar til bjórsölu á Laugardalsvelli.

Sala á bjór var heimiluð á landsleik Íslands og Albaníu á mánudag og var það í fyrsta skipti sem áfengissala fer fram á heimaleik landsliðsins. Margir fögnuðu þessari nýbreytni enda lengi verið kallað eftir því að Íslendingar fari sömu leið og nágrannaþjóðirnar þar sem sala á léttvíni er heimiluð á viðburðum sem þessum.

Bryndís var í viðtali við Stöð 2 í gær um málið og velti hún upp nokkrum spurningum í tengslum við málið.

„Þetta er svona ákvörðun eða stefna sem mér finnst að við þurfum að taka hér. Hvaða ásýnd viljum við hafa á fótboltaleikjum og hvaða hópa viljum við fá til þess að mæta? Viljum við fá fjölskyldurnar, iðkendurna með foreldrum sínum eða viljum við hafa þetta bara eitt stórt partí?“ 

Bryndís kvaðst sjálf mæta reglulega á landsleiki og benti hún á að hingað til hafi gestir getað skemmt sér ágætlega án áfengis.

„Og það var talað um að salan hefði tekið kipp á miðum eftir að auglýst var að hægt væri að kaupa bjór. Ég velti því fyrir mér: Ef þú þarft bjór til þess að fara á fótboltaleik, ertu þá að fara á réttum forsendum?,“ spurði Bryndís.

Eins og sést hér að neðan voru margir sem gagnrýndu Bryndísi fyrir afstöðu hennar í málinu og létu til sín taka á Twitter.