Bryn­dís um Sunda­braut: Einka­fram­kvæmd og veg­gjöld eina lausnin

Bryn­dís Haralds­dóttir, þing­kona Sjálf­stæðis­flokksins, segir að einka­fram­kvæmd sé eina lausnin þegar kemur að Sunda­braut. Þetta segir Bryn­dís í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

„Álag á sam­­göngu­­kerfið á Ís­landi hef­ur auk­ist mikið á síðasta ára­tug eða svo, tvær millj­ón­ir ferða­manna fóru um þjóð­vegi lands­ins og við heima­­menn vor­um dug­­leg­ir að ferðast og fara á milli staða. Því miður fylgdi nauð­syn­­legt fjár­­magn til vega­­mála ekki í kjöl­farið og þrátt fyr­ir mikla inn­­spýt­ingu á síðustu árum þá eig­um við enn langt í land með að tryggja ör­yggi á þjóð­veg­um lands­ins.“

Bryn­dís segir að Sunda­brautin verði mikil­væg sam­göngu­bót fyrir höfuð­borgar­svæðið en einnig fyrir lands­byggðina.

„Kostnaður við Sunda­braut er á­ætlaður á bil­inu 70-80 millj­arðar. Til sam­an­b­urðar var allt ný­­fram­­kvæmda- og við­halds­­fé Vega­­gerðar­inn­ar á land­inu öllu á 10 ára tíma­bili 2007-2017 á verð­lagi árs­ins 2018 um 160 millj­arðar, eða eins og tvær Sunda­brautir. Fjár­­fest­ing­ar í veg­um og sam­­göngu­mann­­virkj­um hafa sem bet­ur fer auk­ist á síðustu árum. Heild­ar­­fram­lög til Vega­­gerðar­inn­ar hafa farið úr um 25 millj­örðum í 30 millj­arða, en þar eru bæði inn­viðir í flugi, sigl­ing­um og vega­­kerfi. Það er því al­­gjör­­lega ó­raun­hæft að ætla að hægt sé að taka 70-80 millj­arða, til að leggja Sunda­braut, úr rík­is­­sjóði,“ segir Bryn­dís.

Hún segir að það myndi kalla á að ekk­ert annað yrði gert í við­haldi eða upp­­bygg­ingu sam­­göngu­mann­­virkja ann­ars staðar á land­inu eða að fjár­­magn til þess mála­­flokks yrði tekið úr öðrum mik­il­­væg­um mála­­flokk­um eins og heil­brigðis­­kerf­inu, mennta­­kerf­inu og lög­­gæslu svo eitt­hvað sé nefnt.

„Hér þarf ein­fald­­lega aðrar lausn­ir. Í mörg ár hef­ur verið bent á mögu­­leika á sam­­starfs­­verk­efni einka­aðila og hins op­in­bera, svo­kölluð PPP-verk­efni, og eru Hval­fjarðar­göng besta dæmið um slíkt hér á landi.“

Bryn­dís bendir á að hún hafi, á­samt nokkr­um þing­­mönn­um Sjálf­­stæðis­­flokks­ins, lagt fram þings­á­lyktun þar sem lagt var til að Sunda­braut yrði boðin út í einka­fram­­kvæmd.

„Á­huga­­sam­ir hóp­ar geta þá komið með sína út­­færslu af legu, að­ferða­fræði, hönn­un, fjár­­mögn­un og rekstri. Við­kom­andi hefðu heim­ild til að rukka veg­gjöld í á­kveðinn tíma, en að þeim tíma liðnum yrði mann­­virkið rík­is­ins.“

Bryn­dís kveðst sann­færð um að þetta sé raun­hæf leið til að sjá Sunda­braut verða að veru­leika. „Ég tel að líf­eyr­is­­sjóðir og aðrir fjár­­fest­ar sem horfa til lengri tíma telji Sunda­braut arð­bær­an og á­lit­­leg­an fjár­­fest­inga­­kost. Lát­um á það reyna og könn­um hvort einka­fram­takið hafi burði í að reisa Sunda­braut. Fram­­kvæmd­ina sem rif­ist hef­ur verið um í hátt í 50 ár. Við höf­um engu að tapa en allt að vinna.“