„Fjölmiðlar og allar fréttasíður eru bara búnar að loga. Það er rosalega mikið af ljótum kommentum, virkilega ljótum kommentum frá fullorðnu fólki,“ segir Bryndís Líndal, móðir Nadíu Sif Líndal, í samtali við Fréttablaðið.
Þar ræðir hún þau ofsafengnu viðbrögð á samfélagsmiðlum undanfarna daga, en dóttir hennar var önnur þeirra sem heimsótti tvo enska landsliðsmenn sem dvöldu á hóteli í Reykjavík á dögunum. Leikmennirnir voru í sóttkví og máttu því ekki hitta neinn utan hópsins. Það vissu stúlkurnar ekki, en lögregla sektaði leikmennina.
Bryndís vakti athygli á málinu í færslu á Facebook-síðu sinni í gær, en óhætt er að segja að færslan hafi fengið mikil viðbrögð. Hún segir málið hafa gengið allt of langt og mörg þeirra ummæla sem hafa fallið séu til skammar.
„Mánudagurinn var alveg rosalega erfiður en hann var svona aðeins bjartari í gær af því að það fóru að heyrast jákvæðari raddir á samfélagsmiðlum og á fréttamiðlum,“ segir Bryndís við Fréttablaðið þegar hún er spurð um líðan dóttur sinnar eftir að málið kom upp.
Bryndís kveðst ósátt við að skömminni sé skellt á stelpurnar í kommentakerfum netsins, en ekki leikmennina sem brutu sóttvarnarreglur.
„Hér á landi eru þær teknar og jarðaðar því að ÞEIR brutu reglur um sóttkví,“ segir Bryndís sem veltir fyrir sér hvort viðbrögðin yrðu þau sömu væri dæminu snúið við, ungir piltar hafi hitt stúlkur í stelpulandsliði.
„Ég held ekki,“ segir hún.
Viðtal Fréttablaðsins í heild sinni.