Bryn­dís Schram: „Jón Bald­vin var hunsaður og lítils­virtur frá upp­hafi“

Bryn­dís Schram segir eigin­mann sinn, Jón Bald­vin Hannibals­son, fyrr­verandi utan­ríkis­ráð­herra, hafa verið hunsaðan og lítils­virtan frá upp­hafi og að sagan endur­taki sig.

Í skoðana­grein á Vísi rifjar hún upp þegar Jón Bald­vin fékk sím­tal um miðja nótt árið 1991.

„Kunnug­leg rödd sagði: „Jón Bald­vin, nú er stundin runnin upp. Þetta er neyðar­kall frá Vil­níus.“ Þessa rödd átti Vytautas Lands­bergis, for­seti Þjóð­þingsins í Vil­níus. Honum var mikið niðri fyrir. Ég heyrði hvert orð sem hann sagði: „Rússarnir hafa á­kveðið að láta til skarar skríða“. Ég man, að það fór um mig hrollur við til­hugsunina - Rússarnir – til skarar skríða!“ skrifar Bryn­dís.

For­seti þjóð­þingsins hafi óskað eftir nær­veru NATO ráð­herra, og Jón Bald­vin hafi svarað því á­kalli, sem utan­ríkis­ráð­herra Ís­lands.

Bryn­dís segir þá frétta­menn sem hafi slegist í för með Jóni Bald­vini hafi strax fyrsta kvöldið lagt á­herslu á að skjala­taska hans hefði tapast.

„Það var gefið í skyn, að senni­lega hefði JBH bara dottið í‘ða og þess vegna týnt töskunni sinni!“ skrifar Bryn­dís.

Hún segir að seinna hafi verið haldið því fram að KGB, leyni­þjónusta Rússa, hafi stolið töskunni. Hún segir báðar full­yrðingar hafa verið rangar.

Bryn­dís veltir því fyrir sér hvort þetta hafi verið frétt­næmast í ferðinni: „Og svona eftir á að hyggja: Var þetta það sem þótti frétt­næmast við þessa ör­laga­ríku ferð? Who Car­ed!“