Bryndís Schram dáist að Má: „Innilegar þakkir, fallegi drengur“

„Það kemur stundum fyrir, að maður verður vitni að einhverju merkilegu, einhverju sem breytir jafnvel lífi manns og fær mann til að hugsa allt upp á nýtt - jafnvel gráta,“ segir Bryndís Schram, fyrrverandi sjónvarpsstjarna, í pistli á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hún þátt RÚV í gærkvöldi, Dagur í lífi, að umtalsefni en í þættinum var rætt við afreksmanninn Má Gunnarsson. Lífsviðhorf Más er aðdáunarvert en hann missti sjónina ungur að árum en hefur það ekki látið stoppa sig í að elta drauma sína. Hann er einn fremsti sundmaður heims í sínum flokki og þá hefur hann einnig gert það gott í tónlist.

Í pistli sínum segir Bryndís:

„Í gærkvöldi sátum við Jón Baldvin fyrir framan sjónvarpið og horfðum á viðtal við tuttugu og eins árs dreng, sem við þekkjum nokkuð til, án þess þó að hafa hitt hann í eigin persónu. Hann heitir Már Gunnarsson og er þekktur á Íslandi sem margverðlaunaður sundkappi, auk þess sem hann syngur eins og engill og semur sín eigin lög.“

Bryndís vísar í orð Más í viðtalinu þar sem hann sagði meðal annars að það sem skiptir máli í lífinu sé að eiga sér draum og gera það sem í okkar valdi stendur til að láta þann draum rætast. Erfiðleikarnir séu til þess að sigrast á þeim.

„Hann sagði okkur sögu sína með geislandi brosi, gáska og húmor. Orð hans voru sannkallaður innblástur handa okkur hinum – sem eigum að heita með fulla sjón, en erum samt síkvartandi. „Ég hef ekki undan neinu að kvarta“, sagði hann, „með heila, sem svínvirkar og yndislegt fólk í kringum mig“.

Bryndís heldur áfram:

„Það liggur við, að við blygðumst okkar. – Við sem höfum fengið allt upp í hendurnar, en kunnum sjaldnast að meta það að verðleikum. Þetta var ógleymanleg sögustund, sem kenndi okkur svo margt, miðlaði okkur svo óendanlega miklu. Innilegar þakkir, fallegi drengur.“