Bryndís sá nýju íslensku gamanmyndina og lýsir því hvernig henni fannst

Bryndís Schram, leikkona og fyrrverandi sjónvarpskona, skellti sér í bíó í gær og sá frumsýningu Saumaklúbbsins, nýrrar íslenskrar bíómyndar í leikstjórn Göggu Jónsdóttur.

Myndin segir frá fimm vinkonum á besta aldri sem ákveða að skella sér í sumarbústað til að hafa það gott og slaka á. „Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þegar síst varir,“ segir í lýsingu á söguþræðinum en þess má geta að myndin er framleidd af Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni sem framleiddu einnig Síðustu veiðiferðina og Ömmu Hófí.

Bryndís skrifar stutta umsögn á Faceook-síðu sína og segir að myndin hafi svo sannarlega ekki valdið henni vonbrigðum.

„Þetta reyndist vera ísmeygilega fyndið verk og á köflum dillandi kómiskt – jafnvel tragikómiskt. Handrit Snjólaugar Júlíusdóttur er kunnáttusamlega samansett. Persónurnar eru mótaðar skýrum dráttum og eru auðþekkjanlegar úr vinahópi okkar flestra: drifkrafturinn, vælukjóinn, slysagildran, meðhöndlarinn og „loserinn“.“

Bryndís fer ekki ofan í söguþráð myndarinnar en lofar fylgjendum sínum að þeir verði ekki fyrir neinum vonbrigðum. Með aðalhlutverk fara nokkrar af fremstu leikkonum þjóðarinnar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Arndís Egilsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir. Bryndís var hrifin af frammistöðu þeirra.

„Leikkonurnar skila sínu hver annarri betur – og eru alveg ófeimnar við að láta vaða miskunnarlaust, bæði gagnvart sjálfum sér og okkur, áhorfendum. Það er stígandi í myndinni. Smám saman færist fjör í leikinn. Mér var skemmt allan tímann, stundum tók ég nánast bakföll af hlátri – og fór í lokin út í ljómandi skapi. Lokaorð – missið ekki af þessu.“