„Þau fara í seinni skimun á aðfangadag þannig að þangað til er ég ekki húsum hæf,“ segir Bryndís Sigurðardóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps og fyrrverandi ritstjóri Bæjarins besta, í samtali við Hringbraut.
Bryndís lenti í óskemmtilegri reynslu í gær þegar hún kom þremur einstaklingum til aðstoðar eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi. Síðar kom í ljós að fólkið átti allt að vera í sóttkví en þau voru nýbúin í fyrri skimun á landamærunum þegar slysið varð.
Bryndís sagði frá þessu fyrst í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Í færslunni sagði Bryndís meðal annars: „Takk fyrir aðskildar akreinar. Í morgun rann voldugur jeppi til á akreininni á móti mér og skipti engum togum að hann kom á móti mér í loftköstum og stöðvaðist loks milli akreina, á hliðinni.“
Í jeppanum var ungur maður með móður sína og ömmu sem er 83 ára gömul. Sem betur fer urðu ekki alvarleg slys á fólki en önnur konan fann þó til í öxl auk þess sem öllum var augljóslega brugðið.
„Þær þurftu að skríða út úr bílnum í gegn um loftlúguna. Ég tók þær inni í bílinn minn meðan við biðum eftir hjálp og hlúði að þeim eftir bestu getu, bölvaði því að hafa alveg nýlega fjarlægt teppi sem ég er oftast með í bílnum en breiddi úlpuna mína yfir þær. Þetta fór allt ótrúlega vel miðað við loftköstin og velturnar á bílnum. EN, síðan kom í ljós að þau áttu öll að vera í sóttkví,“ segir Bryndís en það kom í ljós eftir að starfsmaður neyðarlínunnar bað hana um að spyrja fólkið.
Bryndís bendir á að hún hafi ekki formlega verið sett í sóttkví en eðli málsins samkvæmt vilji hún ekki taka neina áhættu. „Út af þessum tíma vill fólk kannski eðlilega ekki vera nálægt mér og ég vil ekki heldur setja neinn í sóttkví yfir jólin,“ segir Bryndís en fólkið í bílnum fær niðurstöður úr seinni skimun á aðfangadag eins og fyrr segir.
„Auðvitað eru líkurnar minni því að í seinni skimun greinist sjaldnar smit, það greinist yfirleitt alltaf í fyrri skimun. En maður tekur ekki sénsinn á þessum tíma,“ segir hún. Hún segir að ekki virðist allir gera sér grein fyrir því að þeir sem eru í sóttkví þurfi að halda sig heima og ekki vera á ferðinni innan um fólk. „Fólk má ekki fara í bíltúra í sóttkví af því að svona getur alltaf gerst,“ segir Bryndís sem hefur það náðugt fram á aðfangadag hið minnsta.
„Þetta er ömurlegt,“ segir hún og bætir að lokum að hún hafi ekki einu sinni verið búin að ljúka við jólagjafainnkaupin þetta árið.
Takk fyrir aðskildar akreinar. Í morgun rann voldugur jeppi til á akreininni á móti mér og skipti engum togum að hann...
Posted by Bryndís Sigurðardóttir on Mánudagur, 21. desember 2020