„Ég hitti þennan mann oft eftir þetta og viðmót hans breyttist mikið. Þessi reynsla hafði greinilega mikil áhrif á sýn hans á unga fólkið og líklega margt annað líka,“ segir Bryndís Bjarnadóttir.
Bryndís skrifaði færslu sem birtist í Facebook-hópnum Jákvæðasta grúbban á Íslandi en eins og nafnið gefur til kynna má þar finna jákvæðar og uppbyggilegar sögur og færslur. Bryndís gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að deila færslunni með lesendum enda ekki vanþörf á meðan þriðja bylgja COVID-19-faraldursins gengur yfir.
Bryndís segir:
„Þetta er mér alltaf minnisstætt. Fyrir mörgum árum vann ég í lítilli hverfissjoppu þar sem mikið var um fastakúnna. Einn af þeim var eldri maður sem hafði mjög neikvæða sýn á lífið og samborgara sína og var ekki feiminn við að tjá skoðanir sínar.
Honum var sérstaklega illa við unglinga.
Eitt skiptið sem hann kom voru tveir drengir um 14- 15 ára á undan honum.
Þegar þeir fóru tautaði hann yfir því að þetta unga fólk væri gjörsamlega óalandi og kynni hvorki málið né mannasiði. Það kynni ekki einu sinni að gyrða sig. Skopparatískan var ráðandi á þessum tíma. Hann hafði miklar áhyggjur af framtíð þessa lands þar sem þessi skríll yrði við völd.
Svo pantaði hann pylsu og kók eins og vanalega.
Þegar kom að því að borga leitaði hann í öllum vösum og var orðinn örvæntingarfullur. Hann hafði týnt umslaginu sínu með laununum sínum fyrir þennan mánuðinn sem hann tók út hver mánaðamót.
Stuttu síðar komu drengirnir aftur og spurðu hvort ég gæti aðstoðað þá með þetta umslag sem þeir fundu fullt af peningum.
Gamli maðurinn bauð þeim fundarlaun sem þeir afþökkuðu með því að segja „No worries gaur. Kauptu þér frekar köku eða eitthvað.“
Maðurinn taldi peningana þegar þeir voru farnir og sagði hálf klökkur að þetta væri allt þarna. Hann var með tárin í augunum og þetta hafði auðsýnilega mikil áhrif á hann.
Ég hitti þennan mann oft eftir þetta og viðmót hans breyttist mikið. Þessi reynsla hafði greinilega mikil áhrif á sýn hans á unga fólkið og líklega margt annað líka.“