„Ætlar lögreglan og veirutríóið virkilega að fara að vandræðast við stráka í Val og Leikni vegna fagnaðarláta í kjölfar Íslandsmeistaratitils og sæti í úrvalsdeild. Þeir hafa beðist afsökunar og þetta var í versta falli óheppilegt.“
Þetta segir Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, á Facebook-síðu sinni.
Eins og greint hefur verið frá er lögreglan með fagnaðarlæti karlaliðs Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu til rannsóknar.
Ekki nóg með það heldur er lögreglan einnig að skoða mál karlaliðs Leiknis en leikmenn beggja liða fögnuðu mjög síðastliðinn föstudag þegar tilkynnt var að Íslandsmótinu í knattspyrnu yrði hætt. Þar með varð Valur Íslandsmeistari og Leiknir komst upp í Pepsi Max-deildina í annað sinn í sögu félagsins.
Lögregla er málin til skoðunar en fyrir liggur að þar voru brotnar reglur um fjöldatakmarkanir. Jón Magnússon er þó þeirrar skoðunar að ekki eigi að refsa liðunum vegna þessa.
„Af hverju að vera með refsivöndinn á lofti. Já og það þegar það sýnir sig að hertu aðgerðirnar voru óþarfar þar sem smit var á niðurleið í þjóðfélaginu. Hvernig væri að segja ykkur er fyrirgefið. Syndga ekki framar.“