Sjónvarps- og fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason á eftir að sakna Þórólfs Guðnasonar, en í morgun var tilkynnt að hann væri búinn að segja upp störfum sem sóttvarnalæknir.
„Manni er eiginlega hálf brugðið. Við stöndum í þakkarskuld við Þórólf. Hann hefur leitt okkur á farsælan hátt gegnum kóvíð, þykist aldrei hafa öll svörin, er ekki of fullyrðingasamur, tekur mið af þeim upplýsingum sem honum berast, og nú þegar pestin hefur gengið verulega niður sýnist manni að flestar ákvarðanir hans hafi reynst vera farsælar,“ segir Egill í færslu á Facebook.
Mikið hefur mætt á Þórólfi undanfarin misseri og fær hann kærkomna hvíld frá og með 1. september næstkomandi.
„Þetta hefur verið feiknarlega erfitt og ábyrgðarmikið starf - svo maður er ekki hissa á því að hann kjósi að draga sig í hlé,“ segir Egill í færslu sinni í morgun.