Brotist inn í verslun Einars: „Það er mjög skrýtið á­stand hérna“

Ó­eirðir hafa geisað víða í Banda­ríkjunum undan­farna daga eftir að Geor­ge Floyd var drepinn af lög­reglu­þjóni í Minnea­polis. Einar Eiðs­son, hönnuður sem bú­settur er í New York, lýsir á­standinu í Frétta­blaðinu í dag en brotist var inn í verslun hans.

„Það er ekkert gaman að vera í þessari borg núna, hún er bara allt öðru­vísi en hún á að sér að vera,“ segir hann í Frétta­blaðinu. „Það er mjög skrítið á­stand hérna. Það er búið að byrgja fyrir glugga flestra verslana og flest­allt er bara lokað,“ bætir hann við.

Einar rekur verslun í borginni á­samt eigin­konu sinni, Alpana Bawa fata­hönnuði. Þau voru stödd úti í sveit um helgina þegar hringt var í þau og þau látin vita að búið væri að brjóta gluggann í versluninni og ó­prúttnir aðilar væru að brjótast inn.

At­vikið átti sér stað að­fara­nótt sunnu­dags og sneru hjónin strax til borgarinnar þar sem ó­fögur sjón blasti við. Búið var að möl­brjóta gluggann og þurftu þau að byrgja fyrir með timbri. Þau höfðu sam­band við lög­reglu en fengu þau skila­boð að lög­regla hefði ekki tíma til að sinna þessu verk­efni.

Nánar er fjallað um málið í Frétta­blaðinu í dag.