Brotist inn hjá Mannlífi og tölvum stolið: „Ég geri ráð fyrir að þetta sé út af okkar störfum“

Brotist var inn á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs í nótt og tölvum og öðrum gögnum stolið. Þetta staðfesti Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, í samtali við Fréttablaðið.

Hringbraut greindi í morgun frá því að brotist hefði verið inn í bifreið Reynis við Úlfarsfell í gærkvöldi þar sem öllu steini léttara var stolið, til dæmis hundabúri og bakpoka. Grunur leikur á að innbrotið í bílinn og innbrotið á skrifstofur Mannlífs í nótt tengist.

Það hefur vakið athygli lesenda Mannlífs að vefurinn lá niðri um stund í kringum hádegið.

Í samtali við Fréttablaðið segir Reynir að tveimur tölvum hafi verið stolið og gögnum eytt.

Bent er á að Mannlíf hafi að undanförnu fjallað ítarlega um meinta háttsemi auðmannsins Róberts Wessman og stóð til að flytja fleiri fréttir af honum. Greindi Mannlíf til dæmis frá því í vikunni að bandarísk lögmannsstofa hefði krafið fjölmiðilinn um að afhenda ákveðin gögn.

Reynir segist ekkert geta fullyrt um það hvort þessi mál tengist en hann segir að tímasetningin sé áhugaverð.

„Ég geri ráð fyrir að þetta sé út af okkar störfum. Þetta er ekki hefðbundið innbrot með þeim skilningi að það sé farið á eftir verðmætum, heldur er gögnum eytt og vefurinn eyðilagður. Ég get ekki fullyrt að Róbert Wessman eigi hluti í máli en tímalínan segir okkur eitthvað. Það er persónulega farið að mér og bíllinn minn eyðilagður og skemmdur. Þetta er skipulagt og ekki margir sem hafa mótív til að gera þetta.“