Brosmilda stúlkan á myndinni varð þriggja ára í gær: Nú vinna íslensk yfirvöld að því að senda hana úr landi

„Litla, fallega og brosmilda stúlkan á þessari mynd heitir Maya! Maya er fædd á flótta og er í dag þriggja ára. Með henni á myndinni er mánaðargamall bróðir hennar sem er fæddur á Íslandi.“

Svona hefst færsla sem Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, skrifaði og birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar fjallaði hún um litla fjölskyldu sem unnið er að því að senda aftur til Grikklands.

„Maya og fjölskyldan hennar fékk vernd í Grikklandi en vegna aðstæðna þar lögðu þau, eðlilega, á flótta þaðan og komust alla leið til Íslands í leit sinni að skjóli. Maya og bróðir hennar eru á meðal þeirra fjölmörgu einstaklinga sem íslensk yfirvöld vinna nú í að reka úr landi og senda í skelfilegar aðstæður í Grikklandi,“ segir Sema sem bætir við að á bak við brosið hennar Mayu sé þriggja ára áfallasaga sem hefur meðal annars valdið því að hún talar ekki.

Fréttablaðið fjallaði ítarlega um málið á dögunum.

„Segja má að Maya og hennar staða endurspegli með ágætis hætti aðstæður fyrir flóttabörn, og í raun allt fólk á flótta, í Grikklandi og þær afleiðingar sem þær geta haft, meðal annars fyrir börn.“

Sema segir að Rauði krossinn á Íslandi sé meðal þeirra sem hafa ítrekað bent á að ekki sé boðlegt að senda flóttafólk héðan og aftur til Grikklands vegna aðstæðna þar. Það eigi jafnt við um fólk sem hefur sótt um vernd þar og fólk sem hefur þegar fengið vernd. Þá hafi Amnesty International og fleiri mannréttinda- og/eða hjálparsamtök tekið sömu afstöðu.

„Íslensk yfirvöld komast þrátt fyrir það að þeirri ótrúlegu niðurstöðu að það sé „forsvaranlegt að senda fólk sem þar hefur fengið vernd til Grikklands!““

Sema segir að þær aðstæður sem íslensk yfirvöld telja forsvaranlegt að senda eins mánaðargamalt barn, sem fætt er hér á landi, í fela meðal annars í sér skort á húsnæði.

„Það þýðir að fólk sem hefur fengið vernd í Grikklandi, og fjölskylda Mayu hefur reynslu af, býr á götunni. Það er nánast útilokað fyrir flóttafólk að fá atvinnu í Grikklandi. Það þýðir, eins og foreldrar Mayu vita, að foreldrar eiga erfitt með að sjá fyrir börnunum sínum. Þá er aðgengi að heilbrigðisþjónustu, menntun og öðrum grundvallarréttindum og grundvallarþjónustu skert. Það þýðir að eins mánaðargamall bróðir Mayu getur ekki gengið að því að fá þá nauðsynlegu umönnun sem hann þarf á að halda í Grikklandi. Það þýðir að staða Mayu muni ekki batna.“

Þá segir Sema að fordómar, ofbeldi og mismunun í garð fólks á flótta hafi aukist til muna á síðustu mánuðum og árum, jafnt af höndum almennings sem og yfirvalda í Grikklandi. Til séu fjölmargir vitnisburðir um íkveikjur í flóttamannabúðum, alvarlegt ofbeldi, misþyrmingar af hálfu lögreglu og dauðsföll vegna offors landamæravarða.

„Svo kom heimsfaraldur og óhætt er að segja að „Grikkland er helvíti á jörðu fyrir flóttafólk“ sem lýsir því sjálft að það vilji frekar deyja en að fara þangað aftur.“

Sema segir að þetta séu aðstæðurnar sem íslensk yfirvöld hafa tekið ákvörðun um að senda Mayu og mánaðargamlan bróður hennar í. Að minnsta kosti ein önnur fjölskylda með lítil börn og rúmlega 30 einstaklingar séu í sömu sporum. Útlendingastofnun vinni nú hratt í að framfylgja þessu.

Sema hvetur fólk til að standa með Mayu, litla bróður hjennar og öllum hinum sem bíða eftir því að verða rekin úr landi. Lætur hún fylgja með slóð á undirskriftalista þar sem hægt er að sýna flóttafólki stuðning.

„Stöndum vörð um mennskuna okkar og sendum skýr skilaboð um að við sættum okkur ekki við einsmánaðargamalt barn, þriggja ára barn eða nokkur einstaklingur í viðkvæmri stöðu sé sendur í þær aðstæður sem eru í Grikklandi og við myndum aldrei sætta okkur við eða bjóða börnunum okkar upp á! Látum yfirvöld vita að það sé #ekkiíokkarnafni og að það verði ekki liðið,“ segir hún.