Bróðir Ingós spyr hve­nær málum hans mun linna: „Mamma og pabbi sem hafa ekkert nema verið góð, taka þetta rosa­lega inn á sig“

Guðmundur Þórarinsson, knattspyrnu- og tónlistarmaður, segir að mál bróður síns Ingólfs Þórarinssonar veðurguðs, hafa tekið verulega á sig. Þetta kemur fram í hlaðvarpi Begga Ólafs en DV greinir frá.

Guðmundur segir málið erfitt sérstaklega þar sem ekki sé vitað hvað sé rétt í málinu og enginn leið til að finna endapunkt.

„Ímyndaðu þér að það væri ekki hægt að dæma þig og þú gætir sagt frá einni skoðun sem gæti verið túlkuð sem óvinsæl af öðrum. Hver væri sú óvinsæla skoðun?,“ sagði Guðmundur í hlaðvarpinu.

Guðumundur svaraði þar spurningunni hvað mest lægi honum á hjarta þessa daganna.

Fyrir um ári síðan birtust á samfélagsmiðlum tugir nafnlausra frásagna þar sem Ingó var borinn þungum sökum um framferði sitt í garð kvenna. Meðal annars var hann sagður hafa brotið gegn konum kynferðislega og sængað hjá fjölda stúlkna undir lögaldri.

Guðmundur velti því upp hver staðan í samfélaginu væri orðin ef hann, sem bróðir Ingólfs, treysti sér vart til að tjá sig um málið.

„Mér finnst þetta bara orðin alltof ýkt umræða. Ég er að reyna að passa mig hvað ég er að segja, en mér finnst samt að mörgu leyti.. – hvert er þetta komið þá ef maður er farinn að passa sig á því hvað maður er að segja sem bróðir einhvers aðila?“

Málið að­stand­endum erfitt

Guð­mundur segir að sem að­standandi aðila sem hefur verið borinn sökum með við­líka hætti og Ingó, það er á sam­fé­lags­miðlum en ekki í gegnum dóms­kerfið, þá sé erfitt að takast á við það þar sem engin geti sagt að­stand­endum hver enda­punkturinn sé, hvernig aðili geti af­plánað dóm götunnar og farið að byggja upp líf sit aftur.

„Ég hef nánast bara óskað þess að það væri ein­hvers konar dómur,“ segir Guð­mundur því þá væri ein­hver endir kominn í málið.

Guð­mundur segir að bróðir hans sé ekki full­kominn, en hann hafi þó aldrei orðið vitni að því að Ingó hagi sér með þeim hætti og lýst er í þeim sögum sem voru birtar gegn honum.

Þegar sögurnar hafi verið birtar hafi að­stand­endur Ingólfs átt erfitt með að átta sig á því sem væri að gerast. Þau eigi þó sem betur fer góða að.

„Að sjá mömmu og pabba sem hafa ekkert nema verið góð og gert sitt besta, þau taka þetta náttúru­lega rosa­lega inn á sig.“

Guð­mundur veltir því fyrir hver lausnin í svona málum sé og hvort krafan sé virki­lega sú að ein­staklingar í sömu stöðu og Ingólfur eigi bara ekki aftur­kvæmt í sam­fé­lagið.

„Eins og þetta lítur út fyrir mér í dag, hann má ekki vinna vinnuna sína, hann má ekki eiga fyrir­tæki, hvað má hann? Hver er lausnin? Er það að aðilinn lendi á götunni? Ég næ ekki alveg að tengja þetta allt saman þannig að þetta sé heil­brigt.“

Guð­mundur viður­kennir að hann sé með­virkur en á sama tíma tekur hann fram að Ingólfur er bróðir hans sem hann ólst upp með og þekkir að góðu. Þetta sé eina syst­kini hans og Guð­mundur hafi ekkert vont í Ingó séð er þeir ólust upp saman. Veltir Guð­mundur því fyrir sér hvort það sé virki­lega svo að hann megi ekki tjá sig og koma bróður sínum til varnar.

„Ég veit ég er með­virkur og allt það en ég hef samt lifað með þessum ein­stak­lingi allt mitt líf og ég hef aldrei séð neitt vont í honum, ef þú skilur hvað ég er að meina. Aldrei. Á þá að dæma mig fyrir þá skoðun? Ég er bara að segja mína hlið og ég er að segja satt frá.“

Hægt er að lesa meira úr við­tali Guð­mundar áDV hér.

Guðmundur Þórarinsson.