Bróðir Elliða stígur fram: Kallaður svín, morðingi og ógeð - „Við getum gert betur“

Svavar Vignis­son, lög­reglu­maður í Vest­manna­eyjum og bróðir Elliða Vignis­sonar, fyrr­verandi bæjar­stjóra í Eyjum, segir að honum þyki sárt að sjá það við­horf sem birst hefur í um­ræðum á netinu undan­farna daga.

Elliði deildi mynd af bróður sínum á Face­book-síðu sinni á dögunum og er ó­hætt að segja að færslan hafi vakið við­brögð. Þar tengdi hann hörmungar­at­vikið í Banda­ríkjunum, þegar Geor­ge Floyd, var drepinn af lög­reglu­þjóni við stöðu lög­reglunnar á Ís­landi.

„Um allan heim mót­­mælir fólk nú eðli­­lega of­beldi lög­­reglu í USA í garð al­­mennings. Hér á Ís­landi glímum við við of­beldi al­­mennings gagn­vart lög­­reglu. #gerum­betur,“ skrifaði Elliði og birti mynd af bróður sínum, Svavari lög­­reglu­manni.

Hvattur til að eyða færslunni

Færslan vakti mikil við­brögð og var Elliði hvattur til að eyða færslunni. „Þú ættir að eyða þessu í einum hvelli. Þetta er það vand­ræða­­legasta sem nokkur manneskja hefur sett á face­book. Þú hlýtur að geta komið þessum skila­­boðum á­­leiðis á smekk­­legri hátt,“ skrifaði ein kona undir færslu Elliða.

Svavar skrifaði færslu á Face­book í gær­kvöldi sem farið hefur víða en þar segir hann meðal annars:

„Face­book status með mynd af mér hefur farið eins og eldur um sinu undan­farna daga […] og hef ég verið kallaður ýmsum frekar ljótum nöfnum allt frá því að fólki verði ó­glatt af henni, svín, morðingi ofl. Ég tek því ekki per­sónu­lega, grunar að það snúi að starfi mínu frekar en mér. “

Kvartar ekki undan erfiðri vinnu

Svavar segist ekki hafa verið við­búinn því að færslan myndi vekja svo mikla at­hygli. „Ég veit ekki hvernig fólk hefur skilið þennan status (eða vill ekki skilja) en hann kom í kjöl­farið á því að við vorum að ræða of­beldi í garð mín sem lög­reglu­manns og annara fé­laga minna og hvort ekki mætti gera betur í þeim efnum. Við ræddum hversu hroða­leg á­standið væri í Banda­ríkjunum og víðar. Óskuðum þess báðir að hægt yrði að snúa ofan af þróuninni hér á landi til að ekki kæmi til vopna­burðar lög­reglu­manna. Við ræddum hvort ég sem lög­reglu­maður gæti gert betur og margir fé­lagar minna líka,“ segir Svavar og bætir við að ekkert í sam­tali þeirra hafi gefið til kynna að and­lát Geor­ge Floyd væri ekki ömur­legt eða dæmi sem hafa komið upp hér á landi.

„Mér þykir hins vegar sárt að sjá það við­horf sem kemur fram í mörgum „komentum“ á þræði Elliða,“ segir Svavar og bætir við að þau skýri ef til vill að ein­hverju lei­yi starfs­um­hverfi lög­reglu­manna.

„Ég hef unnið margs­konar störf í gegnum tíðina. Man ekki áður til að vera kallaður „svín“, „morðingi“, „ógeð“ og margt sam­bæri­legt eins og sumir gera. Lög­reglu­menn vinna oft erfiða vinna og ekki er ég að kvarta undan henni. Ég veit að ég og kollegar mínir um allt land getum gert betur. Ég held samt að að við getum gert betur í báðar áttir,“ segir hann.

Svavar endar færsluna á þeim orðum að stað­reyndin sé sú, eins og kom fram í stuttri færslu Elliða, að lög­reglu­menn hér á landi verði fyrir of­beldi.

„Það er stað­reynd og engir orða­leppar breyta því. Það er aldrei ó­við­eig­andi að benda á of­beldi, sama hver gerandin er og sama hver þolandinn er.“