Broddi Broddason, fréttamaður og fréttaþulur, er að hætta á fréttastofu Ríkisútvarpsins eftir 35 ára starf. Síðasti dagurinn hans er í dag og les hann sinn síðasta fréttatíma í hádeginu.
Rödd Brodda þekkja flestir og er traust ef til vill það orð sem kemur upp í huga flestra þegar rödd hans heyrist í útvarpi.
Í tilefni þessara tímamóta er Broddi í viðtali í Morgunblaðinu í dag þar sem hann rifjar til dæmis upp erfiðustu málin á löngum ferli.
„Stundum koma þeir tímar í asanum hér að varla hefur verið tími til að skrifa fréttir. Í einstaka tilvikum hefur ekki verið annað tiltækt en smámiðadrasl til að setja saman heilan fréttatíma sem þarf bókstaflega að spinna af fingrum fram. Þetta gerðist til dæmis þegar snjóflóðin féllu á Súðavík og Flateyri árið 1995, sem sennilega eru erfiðustu dagarnir á löngum ferli hér. Þá vorum við hér í löngum beinum útsendingum sem stóðu klukkustundum saman, rétt eins og í Suðurlandsskjálftum, eldgosi á Reykjanesi og slíkum fleiri atburðum,“ segir Broddi meðal annars.
Hann verður sjötugur í haust og segir að hann muni án efa sakna vinnunnar og vinnufélaganna.
„Mannskapurinn hér á fréttastofunni hefur endurnýjast tvisvar frá grunni á mínum árum hér og mikill fjöldi frábærra samstarfsmanna hefur farið hér í gegn. En nú er skemmtilegum kafla að ljúka og ég er fullur tilhlökkunar gagnvart næstu verkefnum svo sem að fara í skógarhögg og skítmokstur norður í Skagafirði þar sem ég á rætur.“