Brjálaðist þegar lög­regla stöðvaði hann: Það endaði á að kosta hann 310 þúsund krónur

Héraðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt karl­mann í 30 daga skil­orðs­bundið fangelsi fyrir of­beldi gegn lög­reglu­manni sem var við skyldu­störf.

At­vikið sem um ræðir varð á Ný­býla­vegi sunnu­daginn 24. febrúar 2019, en lög­reglu­menn stöðvuðu för mannsins eftir að hafa veitt því at­hygli að hann væri ekki í öryggis­belti við akstur bif­reiðar sinnar.

Var ekki í öryggisbelti

Sam­kvæmt máls­gögnum játaði maðurinn að hafa ekið án öryggis­beltis og beið hann í bif­reið sinni meðan rituð var vett­vangs­skýrsla. Eftir ritun skýrslunnar fór lög­reglu­maður til mannsins og út­skýrði fyrir honum efni skýrslunnar og kynnti fjár­hæð sektar fyrir brotið.

Við það er maðurinn sagður hafa sturlast, rifið til sín skýrslu­möppuna, ýtt við lög­reglu­manninum og gripið með vinstri hendi í öryggis­vesti lög­reglu­mannsins. Maðurinn var einnig á­kærður fyrir að ógna lög­reglu­manninum með því að slá til hans með krepptum hnefa með hægri hendi en sýknaður af þeim hluta á­kærunnar.

Að því er fram kemur í dómi héraðs­dóms var maðurinn hand­tekinn og fluttur á lög­reglu­stöðina við Dal­veg í Kópa­vogi. Í sam­tali við varð­stjóra greindi maðurinn frá því að stundar­brjál­æði hefði komið yfir hann og hann ekki getað haft stjórn á sér. Maðurinn var frjáls ferða sinna í kjöl­farið.

Ekki boðið að ræða málið

Við skýrslu­töku hjá lög­reglu þann 12. júlí í fyrra­sumar greindi hann frá því að hann hefði gleymt að spenna á sig beltið og raunar verið í vand­ræðum með það þegar lög­regla stöðvaði hann. Hann hefði búist við því að vera kallaður inn í lög­reglu­bif­reiðina til að ræða málin og segja sína hlið á at­vikinu.

Þess í stað „hefði bara verið komið með sektina beint til hans og honum ekki boðið að ræða málið“ eins og segir í dómi. Skyndi­lega hefði fokið í hann og hann neitað að skrifa undir sektar­gerðina og kuðlað miðanum saman.

Vildi loka hundinn inni

Maðurinn viður­kenndi að hafa sýnt mót­þróa við hand­tökuna en hann hefði marg­beðið um að fá að loka hurðinni á bif­reið sinni og loka með því hund sinn inni í bif­reiðinni. Hann hefði ekki lagst í götuna fyrr en honum hafði verið hótað með pipar­úða. Maðurinn sagði lög­reglu hafa sýnt fauta­skap við hand­tökuna.

Dómari taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um of­beldi gagn­vart lög­reglu­manni og var hann sak­felldur fyrir brot gegn vald­stjórninni. Hann hefur ekki áður sætt refsingu. Dómurinn er skil­orðs­bundinn til tveggja ára. Auk þess var honum gert að greiða þóknun verjanda síns, 310 þúsund krónur.