Brjálaðist þegar kærastan fékk læk frá „einhverjum strák“ á Insta­gram

Héraðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt karl­mann í tveggja mánaða skil­orðs­bundið fangelsi fyrir að ráðast á þá­verandi sam­býlis­konu sína.

At­vikið átti sér stað þann 4. nóvember 2017 en maðurinn var á­kærður fyrir að veitast fyrir­vara­laust á konuna á heimili þeirra þar sem hún lá sofandi uppi í rúmi. Er hann sagður hafa haldið fyrir munn hennar og slegið hana í­trekað í and­litið með krepptum hnefa, tekið hana háls­taki og bitið í hægra eyra. Af­leiðingar á­rásarinnar voru þær að konan hlaut meðal annars mar á vinstra augn­loki og augn­svæði og mar á vinstri kinn.

Þegar lög­regla kom á vett­vang sagði fórnar­lamb á­rásarinnar að á­stæða á­rásarinnar hafi verið sú að maðurinn hennar hafi verið ó­sáttur við að ó­kunnugur karl­maður hefði sett „like“ við mynd af henni á Insta­gram.

Þennan fram­burð stað­festi maðurinn í skýrslu­töku hjá lög­reglu. Hann hefði séð, eftir að hann kom heim um morguninn, að „ein­hver strákur“ hefði verið búinn að setja „like“ á brota­þola á netinu. Við það hefði hann brjálast og ráðist á konuna. Kom fram að hann hefði verið mjög drukkinn þegar þetta gerðist og honum liði illa vegna málsins.

Maðurinn neitaði hins vegar sök þegar málið var þing­fest í febrúar á þessu ári og í­trekaði þá af­stöðu sína við aðal­með­ferð málsins. Var hann búinn að breyta fram­burði sínum á þá leið að hann hafi verið að verjast árás konunnar þegar hann tók símann hennar til að skoða hann.

Dómari mat þann fram­burð ekki trú­verðugan og dæmdi manninn í tveggja mánaða fangelsi. Dómurinn er skil­orðs­bundinn til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða konunni 450 þúsund krónur í bætur og sakar­kostnað málsins, sam­tals tæp­lega 440 þúsund kr