„Það er hellingur að gera hjá okkur. Mikið af pestum og umgangspestum í gangi. Það er inflúensan, Covid, streptókokkar og RS,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Fréttablaðið.
Í tilkynningu sem heilsugæslan sendi frá sér er fólk meðal annars hvatt til að halda sig heima og skoða upplýsingar um hinar ólíku pestar á vef Heilsuveru. Er tilkynningin hluti af átakinu, Heima er pest, og er markmiðið að minna á mikilvægi sóttvarna.
„Þar getur fólk fengið ráðleggingar um viðbrögð við einkennum og hvenær þörf er á að heimsækja okkur. Þessar pestir eru yfirleitt veirusýkingar sem ganga yfir en þær geta varað í þó nokkra daga. Þá er best að sýna sér mildi og láta fara vel um sig heima fyrir.“
Ragnheiður segir að margir séu búnir að fá nóg eftir tveggja daga inniveru og vilji fara út.
„En það er ekki nóg þegar um er að ræða veirusýkingu,“ segir Ragnheiður.
Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.