Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, kveðst ósáttur við þau ummæli frá embætti landlæknis að rannsaka þurfi hópsmit sem kom upp á Landakotsspítala.
Þetta segir Már í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, sagði í samtali við mbl.is í gær að það ætti eftir að koma í ljós hvort hópsmitið yrði tilkynnt sem alvarlegt atvik. Rúmlega 80 smit eru rakin til smits sem kom upp á Landakoti á dögunum.
Már kveðst óánægður með þær fregnir að þetta sé atvik sem þurfi að rannsaka. „Það gengur alveg gegn því sem sagt hefur verið um samstöðu í baráttunni við þennan faraldur. Á farsóttartímum er mikilvægast að rekja smit – rakning er ígildi rannsóknar og rakning er tólið sem við höfum til að finna út hvað er á seyði.“
Kjartan Hreinn sagði í viðtalinu við mbl.is í gær að ekki væri tímabært að hugsa um hugsanlega rannsókn. Ef málið yrði tilkynnt yrði kallað eftir gögnum og talað við starfsfólk.
Már segir við Morgunblaðið í dag að ekkert bendi til þess að eitthvað glæpsamlegt hafi átt sér stað.
„Við erum í rauninni að reyna að rekja smitið eftir bestu getu en ekki að áfellast hvert annað. Starfsmenn, sjúklingar og aðstandendur þeirra þurfa ekki á þessum tímapunkti að heyra af því að það sé verið að rannsaka þá eða að gefa í skyn einhverja vanrækslu af þeirra hálfu.“