Breski íþróttamiðillinn Daily Star vitnar í íslenska íþróttafréttamanninn Hjörvar Hafliðason í frétt sinni í gær. Hún fjallar um að nýr markvörður Arsenal Mat Ryan yrði í byrjunarliði liðsins í leik sem var að ljúka gegn Aston Villa.
Hann byrjaði einmitt leikinn í stað Íslendingsins Rúnars Axels Rúnarssonar. Heimildir Daily Star fyrir þessari breytingu á byrjunarliði Arsenal voru auðvitað fengnar frá Hjörvari, sem heldur úti fótboltahlaðvarpsþættinum vinsæla Dr. Football.
Þeir hjá Daily Star virðast þó ekki hafa kannað bakgrunn þessa nýja, en þó áreiðanlega, heimildarmanns síns til hlítar því í fréttinni er vitnað til Hjörvars sem „norska heimildarmannsins“.
Hjörvar gerir góðlátlegt grín að þessu inni á Facebook-aðdáendahópi hlaðvarpsins. „Það eru til margar leiðir til að ná höggi á Doc. Ein af þeim er að kalla hann Norðmann! Well played Daily Star,“ skrifar Hjörvar.
Vert er að nefna að nýi markmaðurinn var ekki lengi að fá á sig mark í leiknum. Aston Villa skoraði gegn Arsenal á annarri mínútu og endaði á að vinna leikinn 1-0.