Breski sendi­herrann furðar sig á veðrinu á Ís­landi

Breski sendi­herrann á Ís­landi, Dr. Bryony Mat­hew, deildi skemmti­legu mynd­bandi á Twitter í dag þar sem hún spyr hvort um sé að ræða vor á Ís­landi þessa dagana.

Sendi­herrann skrifar „Ég var að læra að fyrsti sumar­dagurinn á Ís­landi sé 21. apríl 2022. Ætli það þýði að þetta sé vorið?!“.

Á mynd­bandinu má sjá tjörnina í Reykja­vík snævi lagða, ekki að undra að Ís­lenska veðrið sé að rugla í sendi­herranum!