„Því miður þá er þetta eitt af stóru vandamálunum sem við neytendur glímum við,“ sagði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Þar var nýleg umfjöllun breska blaðsins The Guardian til umfjöllunar en þar var greint frá svokölluðu tegundasvindli á fiskmeti á veitingastöðum, þar á meðal Íslandi. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var á þessu er staðan einna verst á Íslandi.
MATÍS stóð fyrir rannsókn árið 2018 þar sem tekin voru DNA-sýni úr sjávarafurðum, en af þeim 56 sýnum sem tekin voru frá 22 íslenskum veitingastöðum reyndist fiskur ranglega merktur í um fjórðungi tilfella. Dæmi voru um að keila hafi til dæmis verið seld sem skötuselur eða steinbítur. Þá voru dæmi um að langa væri seld sem þorskur og í einu tilfelli var þorskur seldur sem ýsa.
Í frétt Fréttablaðsins í dag kemur fram að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi ekki fundið dæmi um tegundasvindl á íslenskum veitingastöðum þrátt fyrir að könnun MATÍS hafi bent til annars.
Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, segir við Fréttablaðið í dag að heilbrigðiseftirlitið hefði fundað með MATÍS eftir að könnunin kom út árið 2018 en ekki fengið upplýsingar um hvaða staði væri að ræða.
Í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagði Breki það ábyrgðarhluta að greina frá því hvaða veitingastaði er um að ræða. „Mér finnst það vera réttur okkur neytenda að geta sniðgengið þau veitingahús sem eru ekki að selja þær vörur sem þau segjast vera að selja okkur. Það er líka hræðilegt fyrir hina sem standa sig vel að vera kannski grunaðir um græsku.“
Óskar segir við Fréttablaðið að hann efist um að tegundasvindl sé jafn útbreitt á Íslandi og könnunin gefur vísbendingar um. Hann hvetur fólk til að hafa samband við heilbrigðiseftirlitið ef það telur sig hafa orðið fyrir tegundasvindli.