Breki bendir á sturlaðan inn­heimtu­kostnað hjá ís­lensku lána­fyrir­tæki: „Ekki bein­línis í bága við lög en hann er sið­­laus“

Breki Karls­son for­maður Neyt­enda­sam­takanna vekur at­hygli á rosa­legum inn­heimtu­kostnaði hjá smá­la­lána­fyrir­tækinu Núnú.

Sam­tökunum barst á­bending frá hópi lög­fræði­nörda á Face­book um van­skila­­kostnað smá­lána­­fyrir­­­tækisins Núnú. Í fréttinni kemur fram að krafa fyrir­­­tækisins með 12 þúsund króna höfuð­­stól hafi verið komin í 45 þúsund krónur á að­eins sex vikum, sem jafn­­gildir rúm­­lega 2.400% vöxtum á árs­­grund­velli.

„Neyt­enda­­sam­tökin telja að þó þessi inn­heimtu­­kostnaður sé ekki bein­línis í bága við lög, sé hann sið­­laus,“ segir í frétt á vef Neyt­enda­­sam­takanna.

„Sam­­kvæmt lögum má ár­­leg hlut­­falls­tala lán­töku­­kostnaðar nema að há­­marki 35% að við­bættum stýri­­vöxtum Seðla­bankans, sem nú eru 5,5%. Ekkert há­­mark er á inn­heimtu­­kostnaði og því er fyrir­­­tækjum í sjálfs­vald sett hversu hár hann er,“ segja Neyt­enda­­sam­tökin og bæta við:

„Neyt­enda­­sam­tökin telja að þó þessi inn­heimtu­­kostnaður sé ekki bein­línis í bága við lög, sé hann sið­­laus og hafa marg­­sinnis kallað eftir því að Al­þingi stöðvi ó­­svinnuna með nauð­­syn­­legum laga­breytingunum, líkt og ná­granna­lönd hafa gert.“

Bent er á erindi sem Breki Karls­­son, for­­maður Neyt­enda­­sam­takanna, sendi dóms­­mála­ráðu­neytinu þann 23. nóvember 2020. Í erindinu kom fram að á árunum 2018 til 2020 hafi á fimmta hundrað manns leitað til Neyt­enda­­sam­takanna vegna harð­neskju­­legra inn­heimtu­að­­gerða.

Bent var á að lán­tak­endur væru varnar­lausir gagn­vart kostnaði inn­heimtu­­fyrir­­­tækja, þar sem þeir eiga ekki í við­­skipta­­sam­bandi við þau, heldur við kröfu­hafa. Þá væri við­­skipta­­sam­band kröfu­hafa og inn­heimtu­­fyrir­­­tækja oft á þann veg að hvorugur hefði hag að því að leitað sé hag­ræðingar við inn­heimtu, á kostnað neyt­enda.

„Þess má geta að smá­lána­­fyrir­­­tækin nýta sér þessa gloppu. Eftir vel heppnaðar breytingar á lögum um neyt­enda­­lán þar sem þak var sett á vexti, nýta smá­lána­­fyrir­­­tæki nú það að ekkert há­­mark er á inn­heimtu­­kostnaði og hala inn sömu og jafn­vel hærri upp­­hæðum í gegnum inn­heimtu­­gjöld og þau gerðu áður með okur­­vöxtum. Þannig hafa Neyt­enda­­sam­tökin séð dæmi þess að nokkur hundruð króna um­­­deildar kröfur beri tug­­þúsunda inn­heimtu­­kostnað.“

Í frétt á vef Neyt­enda­­sam­takanna segir að erindinu hafi enn ekki verið svarað, tæpum tveimur árum síðar.