Trausti fasteignasala er með Jórusel 6 til sölu, reisulegt hús á rólegum stað efst í Seljahverfinu. Húsið er um 400 fermetrar í tvíbýlishúsi á fjórum hæðum. Aukaíbúð er undir bílskúr sem búið er að breyta í líkamsræktarstöð.
Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þar er hvít innrétting. Eyjan með gaseldavél og fylgir innbyggð kaffivél. Sólskálinn var byggður sem hluti af húsi í upphafi og er inn af eldhúsinu og þar sem hægt er að fara út á pall sem snýr til suðurs.
Öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni eins og skóli, tónskóli, leikskóli og matvörubúð. Skíðalyftan er stutt frá sem og góð útivistarsvæði og fjölda gönguleiða.
Ásett verð er um 120 milljónir en nánar er hægt að skoða eignina hér