Þau risatíðindi bárust í morgun að málið gegn Gylfa Þór Sigurðssyni, fyrrverandi landsliðsmanni í fótbolta, hefði verið fellt niður og hann því laus allra mála tæplega tveimur árum eftir að hann var handtekinn vegna gruns um brot gegn ólögráða einstaklingi.
Fjölmargir Íslendingar hafa fagnað þessum tíðindum, enda Gylfi í miklum metum hjá stórum hluta þjóðarinnar eftir velgengni hans með landsliðinu.
Hringbraut tók saman nokkur ummæli af samfélagsmiðlum þar sem nafntogaðir einstaklingar tjá sig um lyktir þessa máls.
„Hvernig getur það verið vafamál að Gylfi Þór sé, eftir allt þetta, gjaldgengur í íslenska landsliðið,“ spyr rithöfundurinn Einar Kárason um málið á Facebook-síðu sinni.
Eggert Skúlason, reyndur fjölmiðlamaður og fyrrverandi ritstjóri DV, óskar Gylfa alls hins besta.
„Vissulega eru þetta gleðifréttir. Myrkrið sem Gylfi og hans nánustu hefur þurft að glíma við hefur án efa verið mikið. Ég vona að hann og hans fólk finni góða leið til að halda áfram. Saklaus uns sekt er sönnuð er meginregla og hana ber að hafa í heiðri. Óska honum alls hins besta að koma út í vorið sem saklaus og frjáls maður,“ segir Eggert.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, hefur reynslu af því að kljást við breska réttarkerfið við að aðstoða félaga sinn, Julian Assange, og hann vandar því ekki kveðjurnar á Facebook.
„Hef séð nægjanlega mikið af bresku réttarkerfi að geta sett það í ruslflokk. Að það taki nærri tvö ár að úrskurða að engar líkur séu á sakfellingu í máli sem getur ekki verið flókið rannsóknarefni, er forkastanlegur tími. Það er í sjálfu sér ríkisglæpur sem snýr bæði gegn meintum brotamanni og meintum brotaþola.“
Íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson er sáttur við lyktir mála miðað við færslu hans á Twitter.
„Gylfi Þór Sigurðsson er laus allra mála. Frábærar fréttir. Vonandi verður réttlætinu fullnægt. Ekki fleira að sinni. Eina.“