Lögreglan á Vestfjörðum rannsóknar nú mient brot manns sem virðist ekki hafa virt sóttvarnareglur er lúta að skimunarsóttkví.
Í skeyti sem lögreglan birti á Facebook-síðu sinni í morgun kemur fram að maðurinn, sem er nýkominn til landsins, hafi verið stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar á Ísafirði í síðustu viku. Er hann grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Í skeytinu kemur fram að í fórum mannsins hafi fundist nokkrar ætlaðar kannabisplöntur sem hann kannaðist við að eiga.
Í skeyti lögreglu kemur fram að vegna þessara afskipta hafi þrír lögreglumenn þurft að fara í úrvinnslusóttkví í tvo sólarhringa.
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú einnig meint brot á sóttvarnareglum sem talið er að hafi átt sér stað á vínveitingastað í umdæminu um helgina. „Við eftirlit lögreglu þar kom í ljós að sóttvarnareglur voru ekki í heiðri hafðar, án þess að hin meintu brot verði tíunduð hér, enda málið til rannsóknar,“ segir í skeyti lögreglu.