Brauðið og kjötið helmingi dýrara á Ís­landi en í Evrópu

Brauð og kjöt er miklu dýrara á Ís­landi en í öðrum ríkjum Evrópu, sam­kvæmt tölum Töl­fræði­stofnunar Evrópu­sam­bandsins frá árinu 2019.

Fjallað er um málið í Frétta­blaðinu í dag, en þar kemur fram að kjöt sé 56 prósentum dýrara og korn­meti 45 prósentum dýrara en í meðal­tali Evrópu­ríkja.

Þrátt fyrir tals­verðan mun hefur hann minnkað á undan­förnum árum. Þannig var kjötið 75 prósentum dýrara hér á landi árið 2017 og korn­metið 60 prósentum dýrara.

Það er einna helst fiskurinn sem er á svipuðu róli og í öðrum ríkjum, en hér er hann fimm prósentum dýrari en í Evrópu. Þá er bent á að mjólkur­vörur séu á svipuðum stað og kjötið, eða 57 prósentum dýrari. Þá segir í fréttinni að í heildina sé matar­verð rúmu 41 prósenti hærra á Ís­landi en að meðal­tali í ríkjum ESB og EES.

Lægsta mat­væla­verðið í Evrópu er í Rúmeníu, Búlgaríu, Pól­landi og Ung­verja­landi.