Brast í söng á borgar­stjórnar­fundi: „Breyta og breyta það er okkar trú“

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar sló á létta strengi er hún flutti erindi sitt á borgarstjórnarfundi í dag en hún byrjaði ræðu sína á bresta í söng.

Málefni hennar sneri að umræðu um framtíðarþjónustu við eldra fólk í Reykjavík.

„Forseti, ágæta Borgarstjórn, með leyfi forseta“ Þórdís Lóa og hélt svo áfram með því að syngja erindi sitt við lag sem ekki er þó víst hvert var.

„Breyta og breyta, það er okkar trú, allt sem var áður, það er ekki nú,“ var erindið sem Þórdís Lóa fór með.

Hún sagði þetta vissulega „bara til skemmtunar og til þess að fá athygli,“ en mögulega var aðeins farið að halla undan athygli fundarmanna.

Í ræðu sinni nefndi Þórdís Lóa að aðilar sem fæddir eru 1932, 1942 og 1952 séu allir felldir í sama flokk en það er eldri borgarar. Hún telur þó að gríðarlegur munur sé á aðbúnaði þeirra sem fæddust með þessu millibili.

„Fólk sem er fætt 1952 er í fullu fjöri, fólk sem hefur búið vel í húsnæðis og atvinnumálum og mun búa vel í lífeyrismálum,“ sagði hún í ræðu sinni.

Hún telur það undarlegt að allur þessi breiði hópur sé allur settur í sama flokk þar sem grundvallar munur sé á aðbúnaði þeirra sem fæddust fyrr en aðrir.

„Þjónusta verður að vera fjölbreytt og almenn því við erum allskonar,“ sagði Þórdís Lóa.

Hægt er að sjá atvikið í myndbandinu hér fyrir neðan.