Umræðan um lögmæti þeirra aðgerða íslenskra stjórnvalda að senda fólk í sóttvarnarhús við komuna til landsins hefur verið fyrirferðamikil um páskana. Þeim virðist þó fjölga sem furða sig á þessari umræðu og velta fyrir sér hvers vegna verið er að gera svo mikið veður úr því að fólk fari í sóttkví við komuna til landsins – gildir þá einu hvort það er á sérstöku hóteli eða heima hjá sér.
Fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson er í þeim hópi en hann birti færslu á Twitter í gær sem skiptar skoðanir eru um. Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingkona, gagnrýndi einnig umræðuna um málið.
„Skil ekki alveg þetta hóteldrama. Það eiga allir að fara í sóttkví. Ein í herbergi/íbúð. Munurinn er bara sá að nú er það gert á hóteli. Ætluðu menn þá ekki að virða sóttkvína,“ spurði Felix. Eins og að framan greinir eru skiptar skoðanir um þessa nálgun.
Ein kona sem tjáir sig undir færslu Felix segist til dæmis hafa verið í sóttkví með tvö lítil börn í síðustu viku. „Fengum lánaða íbúð systur minnar og ísskápurinn fullur. Fórum út í göngutúra 2svar á dag en forðuðumst fólk og héldum fjarlægð. Ég get ekki ímyndað mér að gera þetta í litlu hótelherbergi og mega ekki fara út,“ segir hún. Felix tekur undir það að það væri óneitanlega erfitt að mega ekki fara út fyrir hússins dyr.
Þá segist ein ung kona skilja vel af hverju fólk er pirrað yfir þessu, til dæmis með tilliti til barna og hvort reglugerðin standist lög yfir höfuð. „En ég fer í hláturskast þegar einhver er að líkja þessu við fangelsi og Norður-Kóreu. Líka asnalegt þegar fólk er að ferðast að óþörfu og vælir svo yfir sóttkví.“
Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingkona Pírata, kom einmitt inn á þennan punkt í sínu tísti í gær, að það sé eins og að vera sendur í gúlag að þurfa að dvelja í sóttkví á hóteli.
„Getum við aðeins tónað niður allt þetta hyperbole? Það að vera á 4 stjörnu hóteli í fimm daga er ekki það sama og að vera vakinn um miðja nótt af fulltrúum NKVD, barinn, yfirheyrður, sent í 2 vikna lestarferð til Síberíu án aðgengis að hreinlæti, hlýjum fötum, mat, hreinu vatni og í kjölfarið látin vinna 12 tíma á dag við námagröft eða skógarhögg og fá innan við 1200 kaloríur á dag í mat,“ segir hún og heldur áfram:
„Já. Það sökkar að fara í fimm daga sóttkví við komuna til landsins. Já, það sökkar að þurfa að borga 50k fyrir þessa dvöl á 4 stjörnu hóteli og fá þrjár máltíðir á dag og þurfa að gangast undir covid próf í þokkabót. En þegar uppi er staðið þá er þetta ekki Gúlag. Það er fyrst og fremst vanvirðing við fórnarlömb þrælkunarvinnubúða, hvort sem þau kallast Gúlag eða eitthvað annað að bera þetta saman. Þarna er ekki að vera að þræla fólki út og þarna er ekki að vera að gera mannamun eftir pólitískum skoðunum þeirra. Þetta eru sóttvarnaraðgerðir sem eru til þess gerðar að við hin sem búum í þessu landi getum farið að hætta að vera í semi-sóttkví mánuðum saman. Íþyngjandi, já, en 10 manna samkomubann er það líka, fyrir alla landsmenn.“
Getum við aðeins tónað niður allt þetta hyperbole? Það að vera á 4 stjörnu hóteli í fimm daga er ekki það sama og að vera vakinn um miðja nótt af fulltrúum NKVD, barinn, yfirheyrður, sent í 2 vikna lestarferð til Síberíu án aðgengis að hreinlæti,https://t.co/uqbxNFI7aj
— Ásta Helgadóttir (@asta_fish) April 2, 2021
Skil ekki alveg þetta hóteldrama. Það eiga allir að fara í sóttkví. Ein í herbergi/íbúð. Munurinn er bara sá að nú er það gert á hóteli. Ætluðu menn þá ekki að virða sóttkvína?
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) April 2, 2021