Börnin hafa hlíft mér við aðkasti

Tuttugu prósent þáttakenda í könnun meðal Alþingismanna og starfsmanna Alþingis sögðust hafa orðið fyrir einelti. Einelti var algengast meðal þingmanna, en 35,7 prósent þeirra greindu frá því að hafa orðið fyrir einelti í starfi eða í tengslum við starfið. Niðurstöður nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar á starfsumhverfi og vinnustaðamenningu Alþingis var kynnt í gær.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis ræðir þetta í þættinum 21 í kvöld.

Áhersla var m.a. á einelti og hvort þingmenn hefðu sætt ofbeldi og hótunum í tengslum við starfið eða starfið valdið þeirra nánustu erfiðleikum í störfum eða námi.

Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt sé að þingmenn upplifi á köflum einelti þar sem starfið sé mikið til átakasækið segir Steingrímur að það skipti máli í því samhengi. „Það er mjög líklega skýring á því af hverju þingmenn í öllum meginspurninunum að þá er skorið hærra meðal þingmanna heldur en meðal starfsmanna Alþingis og þingflokkanna“.

Leita skýringa

„Þá hlýtur maður að leita skýringa í eðli starfsins og upplifun í tengslum við starfið, ekki bara á vinnustaðnum“, segir Steingrímur og um fjórðunugur könnunarinnar nái til neikvæðrar upplifunar utan Alþingi sem vinnustaðar. Fjórtán og hálft prósent greindi frá því að nánum fjölskyldumeðlimum hefði verið hótað ofbeldi í tengslum við störf sín á Alþingi og nærri helmingur töldu að starf þeirra sem þingmenn hefði valdið fjölskyldumeðlimum erfiðleikum í störfum eða námi.

Dapurlegast varðandi fjölskylduna

„Það sem er kannski dapurlegast að sjá er þegar þetta bitnar á alsaklausum fjölskyldum eða aðstandendum þingmanna, mér fannst það eitt af því sem hvað dapurlegast hvað þarna blasti við í niðurstöðunum. Þar kemur umræðan um stjórnmálin og umræðan um þingmenn og það hversu sjálfsagt það þyki að kalla þá öllum illum nöfnum og úthúða þeim örugglega við sögu“, segir Steingrímur en segir að þingmenn séu opinberar persónum sem þurfi að þola meira en annars.

Hvort börn stjórnmálamanna reyni að leyna því að foreldri þess sé Alþingismaður segir Steingrímur að það gerist og börnin segi foreldrum sínum eflaust ekki allt sem á þeim bitnar: „Ansi er ég nú hræddur um það, að mín börn til dæmis hafi nú hlíft mér við því stundum að segja frá aðkasti sem þau kunna að hafa orðið fyrir“, segir Steingrímur og bendir á að í könnuninni komi fram að hluti þingmanna hafi orðið fyrir eignaspjöllum vegna starfsins.

Alþingismenn og starfsfólk Alþingis tók þátt, af 206 manns svöruðu 153 og svarhlutfallið því rúmlega 74 prósent og mjög marktækar niðurstöður.