Börnin fá að vera á­fram á Ís­landi – „Loksins. Loksins! LOKSINS!“

„Elsku börnin, írösku syst­kinin og vinir mínir Ali, Kay­an, Saja og Jadin, hafa loksins fengið skjól og vernd á Ís­landi eftir að hafa verið árum saman (sum frá fæðingu) á flótta frá heima­landi sínu.“

Þetta segir Sema Erla Serdar í Face­book-færslu sem hún birti í gær­kvöldi. Þar greinir hún frá því að ung fjöl­skylda frá Írak hafi fengið vernd hér á landi. Börnin eru öll undir 10 ára gömul og eru for­eldrar þeirra fæddir árin 1993 og 1995. Fjallað var um mál fjöl­skyldunnar fyrr á þessu ári en þá stóð til að senda fjöl­skylduna til Grikk­lands.

„Loksins. Loksins! LOKSINS!,“ segir Sema Erla í færslunni og bætir við að börnin upp­lifi nú í fyrsta skiptið í langan tíma, jafn­vel á ævinni, innri frið, stöðug­leika og öryggi.

„Þau hafa loksins fengið vernd eftir for­kastan­lega, ó­mann­úð­lega og grimmi­lega með­ferð ís­lenskra yfir­valda á börnunum og ungum for­eldrum þeirra,“ segir Sema sem segist þekkja til annarra barna í svipaðri stöðu sem hafi nú einnig fengið vernd hér á landi.

„Það þurfti reyndar heims­far­aldur (!) til þess að ís­lensk yfir­völd á­kváðu að veita nokkrum börnum á flótta skjól og vernd hér á landi (sem er svo aumingja­legt að ég bara get það ekki!) en öryggi þessara barna hefur nú verið tryggt. Þau geta loksins í­myndað sér fram­tíð - sem mörg börn á flótta missa trúna á – og fá nú að vera bara börn með öllum þeim dá­semdum sem því fylgir - eins og öll hin börnin. Því ber sko að fagna!,“ segir Sema Erla sem þakkar fyrir stuðninginn sem fjöl­skyldan fékk.

„Þau eru þakk­látari en orð fá lýst. Lifi sam­kenndin!“

Loksins. Loksins! LOKSINS! 👏 Elsku börnin, írösku systkinin og vinir mínir Ali, Kayan, Saja og Jadin, hafa loksins...

Posted by Sema Erla Serdar on Þriðjudagur, 18. ágúst 2020