Dagur B. Eggertsson borgarstjóri virðist hafa gleymt átökunum í eigin flokki þegar hann ákvað nú síðdegis að þetta væri rétti tímapunkturinn til að gera grín af Sjálfstæðisflokknum og ritdeilum frammámanna þess flokks á síðum Morgunblaðsins.
„Sé stundum Moggann. Þar rífast sjálfstæðismenn um það sem hinn ágæti @fridjon sagði um flokkinn: að hann væri staðnaður. Það er raunar ekki rifist um hvort það sé rétt, heldur um það hvort það sé gott eða vont að vera staðnaður! Einmitt,“ tísti borgarstjórinn nú síðdegis.
Sé stundum Moggann. Þar rífast sjálfstæðismenn um það sem hinn ágæti @fridjon sagði um flokkinn: að hann væri staðnaður. Það er raunar ekki rifist um hvort það sé rétt, heldur um það hvort þð sé gott eða vont að vera staðnaður! Einmitt.
— [email protected] (@Dagurb) February 6, 2021
Friðjón Friðjónsson, almannatengill og miðstjórnarmaður í Sjálfstæðisflokknum, skrifaði grein í Morgunblaðið á dögunum um mikilvægi þess að Sjálfstæðisflokkurinn staðni ekki í afturhaldsviðhorfum.
Hið meinta Steintröll Brynjar Níelsson brást ókvæða við og svaraði grein hans og mættust þeir svo í Silfrinu til að gera út um málefnastöðu flokksins.
Dagur virðist þó hafa gleymt því í grallaraskap sínum að ástandið í hans eigin flokki er ekki mikið betra, eins og Friðjón minnti hann á í svari við tísti Borgarstjórans. „Það er auðvitað allt önnur staða á kærleiksheimilinu @Samfylkingin?“ spurði Friðjón.
Átökin í uppstillinganefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa líklega farið fram hjá fáum sem áhuga hafa á stjórnmálum, en upp úr sauð þegar þingmanni flokksins var boðið þriðja sæti á lista eftir að hann galt afhroð í skoðanakönnun meðal flokksmanna. Í kjölfarið skrifaði einn nefndarmanna í uppstillinganefndinni opið bréf til Loga Einarssonar, formanns flokksins, um hina illu meðferð á þingmanninum.
Það er auðvitað allt önnur staða á kærleiksheimilinu @Samfylkingin ?
— Friðjón Friðjónsson (@fridjon) February 6, 2021